Tímamót July 13, 2008
Í dag (laugardag) var ég með fyrstu forsíðufréttina mína, hana má sjá hér!
Mér finnst sérlega skemmtilegt að vera farin að vinna á Fréttablaðinu.
Í dag (laugardag) var ég með fyrstu forsíðufréttina mína, hana má sjá hér!
Mér finnst sérlega skemmtilegt að vera farin að vinna á Fréttablaðinu.
Ég er orðin of gömul fyrir þetta sjitt. Stundum þegar vaktin er búin er ég með hausverk og líður eitthvað sloj. Það er þannig núna. Dásamlegt þegar kerfið hrynur í miðjum fréttum. Mér er illt í augunum og mig langar að sofa. Mig langar til að vera teleportuð heim til mín og lúra. Góða nótt.
Ég er frjáls eins og fuglinn, flogið næstum ég gæti.
Mér er ekkert til ama flest nú eykur mér kæti.
Alsæll er ég nú orðinn, ekki kann ég mér læti.
Ég er frjáls.
Förum út til að fagna, lyftum freyðandi skálum,
gleði og ánægju aukum, öllum leiðindum kálum.
En þó alltaf við hrópum þegar einhvern við skálum:
Ég er frjáls.
Bannað að stressast.
Bannað.
Bannað.
Á morgun fæ ég skírteini og á morgun þarf ég að vera búin að öllu í heiminum.
Ég verð svo hissa þegar ég fæ það sem ég vil.
Fæ það sem ég vil.
Fæ það sem ég vil.
Liggaliggaliggalá.
Ég sagði honum að hann fengi bara að fara norður seinna. Þá grét hann beiskum tárum yfir svikunum sem voru að ganga yfir hann í hundraðasta skipti. Ég sagði honum að hann gæti farið seinna, en hann vildi fara tvisvar. Mér þótti þetta svo leiðinlegt að það eina sem ég gat gert var að krjúpa á gólfið hjá honum og reyna að hugga þann sem óhuggandi er. Að eilífu óhuggandi maðurinn er.
Að kjósa er góð skemmtun. Við fylgjum áætluðum hugsjónum okkar og skundum á kjörstað. Eftir að hafa kosið dettum við í það og gleymum að fylgjast með sjónvarpinu. Fréttamenn gera það hinsvegar ekki, þeir sitja negldir og fylgjast með. Enda geta þeir síðar sagt hluti eins og Já, það munaði nú litlu að hann Gunnar F. kæmist inn… Fréttamenn eru sniðugt fólk sem segja sáralitlar fréttir nema fyrir aðra fréttamenn til að hlusta á. Þeir hugsa mikið um skúbbin sín og þreytast seint á að tala um spillingu. En stundum verða slys. Þá breytist allt, þá vinna allir saman. Sem er gott…
Það er alltaf eitthvað fólk sem ég þekki ekki neitt og hef aldrei séð áður á Sirkus að biðja mig um að hleypa gommu af vinum sínum framfyrir röð þegar mínir eigin vinir eru bíðandi fyrir utan. Að hóta mér virkar ekki.
…leiðist og leiðist og leiðist og leiðist og leiðist og leiðist og leiðist og leiðist og leiðist og…
Hei, hver vill detta í það með mér í kvöld?
Hahaha! Ég var að djöflast í Manninum. Ég kitlaði hana óspart á meðan hún varði sig með höndunum og þá datt ég á puttana á henni og meiddi mig í vörinni. Ég hef sjaldan séð hana hlæja jafn dátt. Hún hélt um magann flissandi, ýtti mér í burtu og læsti mig úti. Ég elska hana. Ég virkilega elska hana.
Oh! Það er hundleiðinlegt að horfa á Ósí þegar maður veit hverjum verður lógað í lokin…
Ég fékk ægilega skemmtilegar vinnufréttir áðan. Það er gaman að fá nóg að gera í uppáhaldsvinnunni sinni. Að hlusta á tónlist og fá svo að skrifa um hana er snilld þegar maður er ég.
Undrapabbi! Við þurfum að tala saman. Ég get ekki addað nýjum notendum. Mig vantar líka hjálp við að skoða flokkana eina og sér.
Ég ætla að labba í strætó, hlusta á Africa með Toto og reyna að gleyma þessum hræðilega fréttatíma.
It’s gonna take a lot to drag me away from you
Theres nothing that a hundred men or more could ever do
I bless the rains down in africa
Gonna take some time to do the things we never had
Leiði, leiði,
leiði, leiði.
Viltu skemmta mér?
Því ég er að drepast,
því ég er að drepast.
Leiði, leiði,
leiði, leiði.
Ekki kála mér.
Eftir kaldan vetur og skýjaða tilvist mætti ég til vinnu og fann hvernig gleðin, blærinn og andinn höfðu tekið sér bólfestu í hjarta mínu á ný. Ítalskt diskó dundi í eyrunum þar sem ég opnaði hurðina í þúsundasta sinn. Álfalegu augun, sem ná mér alltaf fyrst, blöstu við mér. Svo er það gleðin, gestrisnin og helvítis fylleríið. Já, það eru Færeyingar í bænum.