Posted in Neytendaröfl on December 19th, 2008 1 Comment »
Vegna frétta um Haga og gruns um ógeðfellda viðskiptahætti þeirra langar mig að birta pistil eftir sjálfa mig sem birtist í Fréttablaðinu þann 22. ágúst síðastliðinn. Það þarf væntanlega ekki að taka það fram að ég hef haft horn í síðu þeirra í langan tíma fyrir ítrekuð brot gegn neytendum með lélegum, röngum eða engum [...]
Posted in Neytendaröfl on October 28th, 2008 4 Comments »
Ágæti viðskiptavinur
Síminn mun gera breytingar á skilmálum Internetþjónustu frá og með 1. nóvember næstkomandi.
Breytingin felur í sér að fari gagnamagn erlendis frá yfir 10 GB á sjö sólarhringum, í stað 20 GB áður, áskilur Síminn sér rétt til að lækka tímabundið hraða tengingarinnar til útlanda. Síminn tilkynnir viðskiptavinum sínum um slíkar takmarkanir með tölvupósti. Breytingin [...]
Posted in Neytendaröfl on April 29th, 2008 Comments Off
Kannski er það bara ég en… mér gæti ekki verið meira sama þótt að bensínverð sé hátt og mér finnst það furðulegur hringlandaháttur að geta mótmælt bensínverði á meðan verslanir eins og Þjófatún tvöfalda verð sitt á túrtöppum, lauk og hrossabjúgum. Það er kannsi ekki nógu töff að rappa um verð á kjöti og grænmeti [...]
Posted in Neytendaröfl on November 27th, 2007 2 Comments »
Ég skrapp aftur í búðina um daginn til þess að kaupa lítilræði fyrir heimilið. Í þeim innkaupum keypti ég túrtappa. Af hverri stærð af o.b. túrtöppum eru til tvær gerðir; með eða án gerfiefnisútbyrði. Ég kýs gerfiefnalausa en þeir eru bæði heilsusamlegri og ódýrari. Vegna fyrri reynslu af Þjófatúni ákvað ég að passa að ég [...]
Posted in Neytendaröfl on November 22nd, 2007 2 Comments »
Það er mér mikið kappsmál fyrir hver jól að kaupa dagatalakerti. Svoleiðis var aldrei keypt heima hjá mér þegar ég var lítil og var ég græn af öfund yfir kertunum sem voru alltaf keypt heima hjá Jónínu og Birnu. Vegna þessara minninga úr bernsku minni skiptir dagatalakertið mig miklu máli og réttlæti ég dýrt verð [...]
Posted in Almennt, Neytendaröfl on August 17th, 2007 2 Comments »
Ég hef lengi verið mikill aðdáandi sjónvarpsmarkaða og tel ég þann sem var á Stöð 2 um árið vera eitt skemmtilegasta dæmi þess hvernig slíkur markaður getur verið. Innslögin voru bæði erlend og innlend og hafa sumar vörur markaðsins löngu skipað sér sess í hjarta íslenskra sjónvarpsáhorfenda.
Máttur sjónvarpsmarkaða er nefnilnega sá að þeir geta sýnt [...]
Posted in Neytendaröfl on April 16th, 2007 1 Comment »
Ég laug aftur. Ég laug að starfsmönnum BT að ég ynni hjá Neytendasamtökunum og skipaði þeim að merkja vörurnar sínar almennilega. Það eru fáir sem ég þekki sem hafa lesið bækling samtakanna um merkingar á vörum, en það hef ég gert og þykir óþolandi að þessu sé ekki hægt að sinna jafnóðum. Það er ólöglegt [...]
Posted in Matur, Neytendaröfl on March 21st, 2007 Comments Off
Eins og vinir mínir vita er matur mér afskaplega hugleikið umfjöllunarefni. Ég hef gaman af því að elda og hef sértækar skoðanir á ýmsum matvörum. Til dæmis kaupi ég ekki hvaða pasta sem er. Í allra versta falli hórast ég niður í Barilla en helst vil ég kaupa millapasta í Nóatúni eða betri verslunum en [...]
Posted in Neytendaröfl on September 21st, 2006 Comments Off
Enn hafa yfirvöld í versluninni Þjófatúni ekki séð sér fært að leiðrétta fjórtánkrónuránið sem það stundar á viðskiptavinum sínum á hverjum degi. Finnst engum þetta skipta máli nema mér?
Posted in Neytendaröfl on September 20th, 2006 Comments Off
Um daginn fór ég í Nóatún og keypti þar kók með smá aukaálagningu en það er hin svokallaða fjórtán króna óútskýrða kassaálagning. Eins og áður sagði hef ég farið í Nóatún í JL-húsinu núna í nokkur skipti og keypt þar 2 lítra flösku af venjulegu kóki. Við kælinn er varan merkt á 225 krónur en [...]
Posted in Matur, Neytendaröfl on September 5th, 2006 1 Comment »
Hvað er málið með þurru steinseljuna sem er hellt yfir hvern einasta rétt sem Prikið hefur upp á að bjóða? Þetta er bragðlaus smekkleysa sem ætti að leggja af sem fyrst. Hún festist í teinunum mínum og passar hvorki við Nachos, beyglur, egg/beikon né skinkusamlokur!
Ég var ekki að borða þar, ég þori varla að drekka [...]
Posted in Neytendaröfl on September 2nd, 2006 3 Comments »
Ég vona að einhver frá Neytendasamtökunum lesi þetta blogg vegna þess að ég veit að verslunin Nóatún í JL-húsinu brýtur lög. Það er bannað að merkja vörur með einu verði í hillu og rukka svo fyrir annað (og hærra) við kassann. Ég keypti 2 lítra af kók. Á hátækni-skjá-verðmerki-fyrirbærinu stóð að tveir lítrar kostuðu 225 [...]