Feed on
Posts
Comments

Landflutningar II

Lára Hanna og Ragnar Freyr læknakokkur eru bæði farin af Moggablogginu. Þá eru ekki margir eftir að sækja þangað heim. Ætli ArniM sé ekki sá eini sem eftir er af rununni sem ég las þar á tímum Styrmis. Jú og náttúrulega StebbiFr, gleymum ekki elskunni honum Stebba. Ég verð hrifnari og hrifnari af stílnum hans Stebba þótt innihaldið þyki mér rýrt. Ég vildi óska að ég gæti hljómað eins og minna geðveikur Gísli Einarsson á blogginu mínu.

Og hver er þessi Miðja? Ég óttast að það sé kratabragur af henni miðað við hverjir buðu með að gerast vinur/aðdáandi á Smettinu. Ætli ég neyðist ekki til að lesa hana fyrst og dæma svo. Þetta getur ekki orðið verra en Pressan.

2 Responses to “Landflutningar II”

  1. on 04 Dec 2009 at 11:05 katrín

    neiiii pressan er snilld, hún er með ásdísi rán (þarf eitthvað meir?)

  2. on 04 Dec 2009 at 22:41 Helga Þórey

    ásdís rán er boring