Tímamótafærsla
July 2nd, 2009 by Helga Þórey
Þessi tímamótafærsla er númer þúsund. Ég óska sjálfri mér til hamingju með að hafa bloggað þúsund sinnum. Núna get ég sagt: ‘Ég hef þúsund sinnum bloggað um þetta,’ án þess að vera að ljúga. Stundum þegar ég segi eitthvað óáhugavert við Einar, sem er afar sjaldan, segir hann: Þú ættir að blogga um þetta!
Þetta lag heitir 1000 Eyes. Það var það eina sem mér datt í hug með orðinu 1000 í. Enda dettur mér ekkert í hug þessa dagana nema að kaupa fleiri taubleiur og undirbúa komu erfingjans. Þetta er mjög stílkrumpandi ástand. En lagið er flott. Lagið er meira að segja mjög flott.
One Response to “Tímamótafærsla”

Til hamingju með áfangann!