Topp þrír á Vísi – óður til vitjunartíma
June 12th, 2009 by Helga Þórey
Segðu af þér Valtýr, þú ert vanhæfur og við viljum þig ekki. Á meðan þú þrætir undirstrikarðu vanhæfi þitt.
Segðu af þér Gunnar, þú ert spilltur og það vita það allir. Og skilaðu svo peningunum áður en þú drekkir sorgum þínum á Goldfinger. Kópavogsbúar hafa borgað nóg fyrir þig.
Segðu af þér Árni Páll, íslenska þjóðin hefur fengið sig fullsadda af sérhagsmunagæslu milljónamæringa í ráðuneytunum.
