Feed on
Posts
Comments

Stúdentaráð er svo upptekið af þeirri ógurlegu frelsisskerðingu að setja gjaldskyldu á bílastæðin sem eru næst Háskóla Íslands að þau neituðu ungri konu að koma þeim málstað á framfæri að þeir sem ættu bíla mættu að sjálfir greiða fyrir að leggja þeim. Rétt eins og er gert við LSH núna. Enda segja mér kunnugir að mun auðveldara sé að fá bílastæði við Landspítalann nú en áður. Ég hvet sem flesta til að skrifa undir og samþykkja það að við sem viljum nota bíla eigum að sjálfsögðu að greiða fyrir stæðin – engir aðrir.

http://www.petitiononline.com/borgum/petition.html

3 Responses to “Ég vil vistvænni Háskóla”

  1. on 12 Jun 2009 at 13:09 Sigurgeir Þór

    Er þetta regla sem þér finnst að ætti að gilda allmennt í samfélaginu? Að þeir borgi einungis sem noti þjónustuna. Spurning um að setja á skólagjöld í leiðinni svo að það séu bara þeir sem nota skólann sem borgi fyrir hann. Kannski einkavæða heilbrigðiskerfið í leiðinni?

  2. on 12 Jun 2009 at 13:13 Helga Þórey

    nei. það stendur að ég vilji að fólk borgi í stöðumæla fyrir að leggja fyrir utan háskólann. sérðu það ekki?

    ekki gera mér upp skoðanir kæri sigurgeir, ég er fullfær um að mynda mér þær sjálf.

  3. on 12 Jun 2009 at 20:31 Sigurgeir Þór

    Hahaahha!

    Góður punktur, ég skal ekki gera þetta aftur…