Fleiri dáin börn sem öllum er sama um
January 6th, 2009 by Helga Þórey
Það er ekki einleikið hve stjórnvöld eru á skjön við það sem er að gerast í heiminum fyrir utan kokteilboðin þeirra. Enn og aftur sýnir Þorgerður Katrín Íslendingum hve lítið hún veit um ástand mála í Palestínu. Röflandi um Fatah og Hamas eins og þar sé fólk sem mögulega getur valdið jafn miklum viðbjóði og Ísraelsmenn hafa gert. ISG virðist vera að koma til en þó ekki svo að Íslendingar slíti stjórnmálasambandi við morðingjana í Ísrael. Geir Hilmar vælir í klippinu um að ekki tíðkist að stjórnvöld taki afstöðu í svona málum. Eh… en bíddu? Hvað er þennan andskotans lista staðfastra þjóða? Vorum við ekki á honum árum saman? Styðjandi ófögnuð Bandaríkjamanna í Afganistan og Írak? Ég kalla það afstöðu þótt að Geir geti vafalaust fundið einhver bullrök eins og NATÓ-aðild sem ástæðu. Við þurftum ekki að taka afstöðu með Nató þá frekar en við þurfum að taka afstöðu með Ísrael núna.
Ég vona að einhverjum detti í hug að senda Þorgerði Katrínu þennan link. Hún getur hugsað til hans næst þegar hún ætlar að væla um illmennin í Palestínu eða þvaðra lúxusvandamálin sín í DV.

Þegar ég sé lík saklausra barna liggjandi eins og hráviði úti á götu tárast ég yfir samviskuleysi íslenskra stjórnvalda (og reyndar meðvirkni heimsins almennt). Þið ættuð að skammast ykkar!
2 Responses to “Fleiri dáin börn sem öllum er sama um”

þetta er fullkominn hryllingur, að þetta sé látið viðgangast… allt sem kemur út úr þessum stjórnmálamönnum um þetta mál er ömurlegt.
ég veit – mér verður óglatt við að hugsa um þetta. isg í kastljósinu í gær hjálpaði ekki til við að bæta ímynd þessarar tímamóta ríkisstjórn.