Feed on
Posts
Comments

Mér verður illt í maganum og ég fæ óbragð í munninn þegar ég hugsa til kveifarskapar íslenskra stjórnvalda í málefnum Ísraels og Palestínu. Ég þoli ekki að hugsa til þess að nú eigi að beita sömu aðferðum og gert var við upphaf Íraksstríðsins og sauma varir ríkisstjórnarinnar fastar við rassgatið á Bretum og Bandaríkjamönnum.

ISG sér ekki ástæðu til að segja okkur út stjórnmálasambandi við Ísrael. Að minnsta kosti samkvæmt viðtali sem ég las við hana um daginn. En ég vil ekki vera í stjórnmálasambandi við Ísrael. Mér finnst að íslenska þjóðin eigi að taka afstöðu gegn öllum hernaði. Stríð er alltaf ógeðslegt en þegar saklausir borgarar eru króaðir af og teknir af lífi er mér gjörsamlega misboðið. Mér verður óglatt. Óglatt við tilhugsunina að einhverstaðar á einhverjum pappír úti í heimi kemur friðsamleg afstaða mín ekki fram. Óglatt að búa við ofríki stjórnvalda sem sætta sig við barnamorð í þágu vinsemdar við kapítalískan skríl.

Á meðan við eru í stjórnmála- og viðskiptasambandi við þetta land erum við að loka augunum fyrir ógeðslegum glæpum á hendur sakleysingja. Þetta eru líka okkar börn.

4 Responses to “Ófyrirgefanlegt sinnuleysi stjórnvalda”

  1. on 04 Jan 2009 at 22:40 Líf

    Patti Smith sagði einu sinni – þegar maður á börn þá eru öll börn manns eigin. Mér fannst það nokkuð töff. Ég verð alltaf reiðust þegar einhver gerir börnum mein.

  2. on 05 Jan 2009 at 10:32 Deeza

    Piltur að nafni Gísli Freyr er nú aldeilis með lausnir á þessu vandamáli (og fleirum). Mæli með því að þú kíkir á http://gislifreyr.blog.is/blog/gislifreyr/. Seeing is believing.

  3. on 05 Jan 2009 at 20:29 Lára

    Skrítið að það skuli ekki vera hægt að kommenta hjá þessum Gísla. Hefði alveg verið til í að gera það.

  4. on 05 Jan 2009 at 21:39 Helga Þórey

    iss það er tilgangslaust að tala um fyrir svona kjánum. þeir trúa engu nema að það sé búið að álykta um það í einhverju ráði hjá sjálfstæðisflokknum.