Feed on
Posts
Comments

Archive for January, 2009

seðlabankinn stendur enn

ekki þorði geir að reka davíð. hver þorir því þá?

GHH + ISG = ESB

Ég hef lengi haldið því fram að helsta ástæða þess að ISG hafi hangið í þessu stjórnarsamstarfi sé loforð Geirs um að sækjast eftir Evrópusambandsaðild. Ég held nefnilega að Sjálfstæðisflokkurinn sé besta von Samfylkingar um að komast nálægt aðild. Steingrímur J. myndi hlæja að þeim og Simmid D. og Framsókn eiga ekki eftir að gera [...]

Ég verð nú að játa að það er óskaplegur léttir að finna angann spriklandi inn í sér svona í miðri byltingu. Samkvæmt þeim hundruðum bóka og vefsíða sem ég hef lesið um efnið tekur heyrnin við sér um þessar mundir. Hvernig ætli það sé að það fyrsta sem að maður heyrir í veröldinni sé samsláttur [...]

Lára Hanna

…hittir naglann á höfuðið. Lesið pistilinn hennar. Hann má finna hér.

Níðingsháttur lögreglu – myndir

Jói bróðir virðist vera að slá í gegn sem einn af aðal kreppuljósmyndurunum þennan vetur sbr. myndina sem ég birti hér neðar á síðunni. Nú síðast í gær tók hann þessa prýðilegu mynd af ‘varnaraðgerðum’ lögreglu. Áfram Jói!

Byltingunni verður ekki sjónvarpað

Hvenær verða þau borin út?

Meiri morð á Gaza, meiri spilling í pólitík, lélegt aðhald fjölmiðla, afvegaleiddir röflarar væla um grímur, fólk borið úr íbúðum sínum, afskriftir lána, pólitískar ráðningar, þið eruð ekki þjóðin, ekki hefð fyrir að fordæma barnamorð, engin ástæða til að ráðherra víki, borga inn á sjúkrahús, róbert wessmann á stöð 2 (gubb), pólitísk bankaráð, hærri vextir, [...]

Blaðamennska 103

Þegar þýða á frétt getur eitt og annað farist fyrir. Sumt er skiljanlegt því á tungutaki og frásagnarhætti getur verið erfitt að átta sig á. Sumt er þó borðleggjandi. Á DV.is má sjá frétt um mann sem seldi dóttur sína. Hún er svona:
Seldi dóttur sína fyrir bjór og peninga

Lögreglan í Greenfield í Bandaríkjunum hefur [...]

Besta kreppumyndin

Það eru ekki margir sem vita að það var litli bróðir minn, Jóhannes Gunnar Skúlason (einnig þekkur sem Lilli-Mjási) sem tók þessa mynd af honum Gunna með skiltið sitt í haust. Af bróður mínum er ég afar montin, hann tekur sérlega fínar myndir en þær má sjá hér. Ég hvet sem flesta til að kíkja [...]

Það er ekki einleikið hve stjórnvöld eru á skjön við það sem er að gerast í heiminum fyrir utan kokteilboðin þeirra. Enn og aftur sýnir Þorgerður Katrín Íslendingum hve lítið hún veit um ástand mála í Palestínu. Röflandi um Fatah og Hamas eins og þar sé fólk sem mögulega getur valdið jafn miklum viðbjóði og [...]

Mér verður illt í maganum og ég fæ óbragð í munninn þegar ég hugsa til kveifarskapar íslenskra stjórnvalda í málefnum Ísraels og Palestínu. Ég þoli ekki að hugsa til þess að nú eigi að beita sömu aðferðum og gert var við upphaf Íraksstríðsins og sauma varir ríkisstjórnarinnar fastar við rassgatið á Bretum og Bandaríkjamönnum.
ISG [...]

Það var líka mótmælt fyrir norðan og vestan

Er mér að yfirsjást eitthvað á internetinu eða er bara fjallað um mótmæli á Akureyri og Ísafirði á rúv.is? Svo rakst ég á þessar fínu myndir þaðan eftir Ágúst Atlason sem fleiri ættu að kíkja á.
Annars voru mótmælin í dag fjölmennari en ég bjóst við – og mun fjölmennari en löggan segir.

Jibbí!