Neytendabræði: Síminn auðgar lífið
October 28th, 2008 by Helga Þórey
Ágæti viðskiptavinur
Síminn mun gera breytingar á skilmálum Internetþjónustu frá og með 1. nóvember næstkomandi.
Breytingin felur í sér að fari gagnamagn erlendis frá yfir 10 GB á sjö sólarhringum, í stað 20 GB áður, áskilur Síminn sér rétt til að lækka tímabundið hraða tengingarinnar til útlanda. Síminn tilkynnir viðskiptavinum sínum um slíkar takmarkanir með tölvupósti. Breytingin tekur til skilmála númer 14, en hægt er að nálgast þá á heimasíðu Símans: http://www.siminn.is/servlet/file/Skilmalar_Internetthjonusta.pdf?ITEM_ENT_ID=76310&COLLSPEC_ENT_ID=8
Eins mun þakið í áskriftarleiðunum Góður og Betri hækka úr 7.500 í 8.500 kr. frá og með 1.desember nk. Samanlagður kostnaður áskriftar og umfram niðurhals fer því ekki yfir 8.500 kr.
Kveðja,
starfsfólk Símans
Ármúli 25 108 Reykjavík Iceland http://www.siminn.is
Síminn auðgar lífið
Þetta þýðir að Síminn ætlar að skerða þjónustuna mína um helming án þess að veita mér krónu í afslátt!
4 Responses to “Neytendabræði: Síminn auðgar lífið”

Geturðu ekki verið með HÍ-netið heima? Það er aldeilis ókeypis.
getur einar notað það líka?
Já það held ég alveg örugglega.
Hérna: http://www.rhi.hi.is/2007/10/18/leidbeiningar-um-notkun-adsl-tjonustu-rhi/