Lufsugangur Stúdentaráðs lýsir sér svona:
October 8th, 2008 by Helga Þórey
Dæmi tekin af heimasíðu LÍN:
Dæmi 1:
Barnlaus einstaklingur í leiguhúsnæði / eigin húsnæði.
Tekjur: 900.000
10% skerðing: 90.000
Framfærsla í eitt ár í fullu námi: 905.400
Bókalán: 48.000
Skerðing vegna tekna: 90.000
Heildarlán: 863.400
Deilt á 9 mánuði: 95.000 krónur á mánuði (ég þekki engan sem hefur fengið þessa upphæð).
Dæmi 2:
Barnlaus einstaklingur í leiguhúsnæði / eigin húsnæði.
Tekjur: 2.300.000
10% skerðing: 230.000
Framfærsla í eitt ár í fullu námi: 905.400
Bókalán: 48.000
Skerðing vegna tekna: 230.000
Heildarlán: 723.400
Deilt á 9 mánuði: 80.000 krónur á mánuði (ég þekki mjög marga sem fá þessa upphæð).
Ofan á reiknast framfærsla frá bankanum. Til þess að fá námslán þarf maður að fá yfirdrátt og borga af honum vexti og kostnað. Ég er fjúkandi reið út í Stúdentaráð fyrir aðgerðaleysi sitt. Framvegis kýs ég ekki fylkingu sem berst ekki fyrir hækkuðum námslánum. Maður á ekki að þurfa að vinna með skóla, háskólanám er full vinna.
2 Responses to “Lufsugangur Stúdentaráðs lýsir sér svona:”

pff… ég á að lifa á 70.000 krónum á mánuði. Lín er svín.
Ég spjallaði við einn stjórann hjá LÍN í vinnunni í sumar og hann sagði að það hefði engin krafa um hækkun komið frá Stúdentaráði. Eins og gefur að skilja varð ég fjúkandi öskuvond.
Ef ég hefði tíma þá myndi ég stofna nýtt framboð.