Táknmálsramminn á RÚV October 6, 2008
En fallega gert af RÚV að sponsa í táknmálstúlka í tilefni dagsins. En hvað á að gera alla hina dagana sem heyrnarlausir fá fréttir í 5 mínútur á dag?
En fallega gert af RÚV að sponsa í táknmálstúlka í tilefni dagsins. En hvað á að gera alla hina dagana sem heyrnarlausir fá fréttir í 5 mínútur á dag?
Einmitt :(
Ætli heyrnarlausir séu þá undanþegnir afnotagjöldum nema á svona tyllidögum?
ég hugsa líka oft um þetta þegar það eru fréttir sem varða heyrnarlausa. Þá eru alltaf túlkar. Það virðist s.s. bara vera gert ráð fyrir því að heyrnarlausir hafi áhuga á því sem varðar heyrnarlausa, skítt með allt hitt.
Ég yrði brjáluð ef ég fengi bara að hafa hljóðið á þegar það kæmur fréttir af námsmönnum á íslandi.
já ég veit. heyrnarlausum er mismunað hræðilega. þau fá ekki málið sitt metið sem móðurmál. spurning um að fara að vinna fyrir þau og málefni þeirra..?
ég myndi heldur ekki vilja vera blind að fara yfir gönguljósin á hringbraut hjá háskólanum. ég var næstum því drepin þar (aftur!) um daginn. ég skil ekki hvernig er hægt að ná svona háum hraða á leið út úr hringtorginu. ég þyrfti að hafa mig alla við.