Feed on
Posts
Comments

Archive for October, 2008

Jarðaber eru góð

Þegar Einar kom heim úr vinnunni í dag kom hann með pakka af jarðaberjum handa mér.

Ágæti viðskiptavinur
Síminn mun gera breytingar á skilmálum Internetþjónustu frá og með 1. nóvember næstkomandi.
Breytingin felur í sér að fari gagnamagn erlendis frá yfir 10 GB á sjö sólarhringum, í stað 20 GB áður, áskilur Síminn sér rétt til að lækka tímabundið hraða tengingarinnar til útlanda. Síminn tilkynnir viðskiptavinum sínum um slíkar takmarkanir með tölvupósti. Breytingin [...]

Bréfin til E.H.

Ég skil ekki hvaða fólk þetta er. Og af hverju birtir hann bara lof um sjálfan sig? Ég sprakk úr hlátri þegar bréfabunkinn eftir sjálfsmorðið með Jóni Ásgeiri var birtur.
Og það á nokkuð erfiðu prófi.
Nýju fötin keisarans.

We Are Not The Enemy

Ó, ég sá svo fallegt á blogginu hennar Unnar Maríu sem ég verð að pósta líka. Gerið svo vel!

Í dag (fyrir miðnætti) átti pabbi gamli afmæli, hann er núna 53 ára ungur. Af einhverjum ástæðum hafa afmælisdagar mér alltaf verið hugleiknir. Þegar ég var lítil stelpa á Ólafsfirði mundi ég hvenær allir í bekknum áttu afmæli. Og geri enn.
Ég nennti ekki að skrifa meira um Airwaves um helgina. Á föstudeginum ákvað ég frekar [...]

Enn af krappi á Airwaves

Gærkvöldið var svo viðburðarlítið að ég hef ekki nennt að skrifa um það í dag. Ég er bara búin að læra og sofa. Ég byrjaði niðri á fokkíngs Tungli og sá þar Cocktail Vomit, það var mjög skemmtilegt en furðulegt á sama tíma. Hver setur eldhressa diskósveit klukkan átta fimmtudegi? Maður spyr sig.
Síðan fór [...]

Ætlar þú líka að vera asni?

Ef ekki þá verðuru að lesa þetta og mæta á þetta.

Strax er Airwaves orðið krapp

Það var miðvikudagur í gær og ég er strax orðin ósátt við Iceland Airwaves. Ég veit að ég er með eindæmum neikvæð kona en háttalag þeirra sem skipa umgjörð Airwaves er þess eðlis að ekki verður hjá því komist að segja frá.
Í gær ákvað ég að fara á það sem kallast nú Tunglið (áður [...]

Jalapeño

Hvar í Reykjavík fæ ég ferskan jalapeño pipar? Ekki chilli, heldur jalapeño. Við þetta má bæta að í daglega eru kraftaverk framleidd í eldhúsinu mínu. Ég er búin að skrásetja eitthvað og birti fljótlega.

Útför indie-tónlistar

kæru börn, ég er hingað komin til þess að lýsa því yfir að indíið er dautt. að minnsta kosti í þeirri merkingu sem við þekktum það. það eina sem eftir er mætti lýsa sem afleiðum annars ágætrar tónlistarstefnu sem blómstraði á síðasta áratug.
í jarðarförinni komu fram hljómsveitir sem hafa ekki séð ástæðu til þess [...]

Dæmi tekin af heimasíðu LÍN:
Dæmi 1:
Barnlaus einstaklingur í leiguhúsnæði / eigin húsnæði.
Tekjur: 900.000
10% skerðing: 90.000
Framfærsla í eitt ár í fullu námi: 905.400
Bókalán: 48.000
Skerðing vegna tekna: 90.000
Heildarlán: 863.400
Deilt á 9 mánuði: 95.000 krónur á mánuði (ég þekki engan sem hefur fengið þessa upphæð).
Dæmi 2:
Barnlaus einstaklingur í leiguhúsnæði / eigin húsnæði.
Tekjur: 2.300.000
10% skerðing: 230.000
Framfærsla í [...]

Táknmálsramminn á RÚV

En fallega gert af RÚV að sponsa í táknmálstúlka í tilefni dagsins. En hvað á að gera alla hina dagana sem heyrnarlausir fá fréttir í 5 mínútur á dag?

Hvernig finnst þér þetta?

Ég sá þetta á blogginu hennar Gríshildar en vinkona hennar er víst í hljómsveitinni sem heitir því afar svala nafni, The Sisters of Transistors. Mig grunar að Unni Maríu eigi eftir að líka þetta vel.

Vísir vekur athygli – myndir

Snillingunum á Vísi punktur is hefur tekist að sameina tvo meginþætti hæfileika sinna. Það er annars vegar að nota orðasambandið ‘vekur athygli’ og ‘- myndir.’
Afturendi Aniston vekur athygli – myndir
* Leikkonan Jennifer Aniston, sem er 39 ára gömul, sólar sig á stöndinni Los Cabos í Mexíkó.
* Jennifer fær ekki mikið næði því ljósmyndarar sitja um [...]

Mig vantar leiki

Lilli Mjási var svo góður að lána mér Pleisteisjon tölvuna sína. Nánar tiltekið númer 2 – eða PS2 eins og hún heitir í alvörunni. En mig vantar leiki því það er ekki búið að modda hana. Ef einhver á chip í modd eða leiki þá yrði ég afar hamingjusöm.
Ég er búin að sækja Herc’s [...]