Feed on
Posts
Comments

Í dag rann upp sá merki dagur að ég fór loksins til ofnæmislæknis. Ég sagði henni allar sögurnar af því hvernig sumarið væri langt helvíti sem skiptist á milli lyfjamóks og hræðilegra ofnæmiskasta. Ég sagði henni frá því þegar ég fékk exem af köttunum Mörtu, ofhitnaði af rauðvíni í eigin matarboði og ældi hörpudisk út úr bíl á ferð. Hún tók mig í astmapróf og stakk fullt af götum í handlegginn á mér sem í voru settir ofnæmishvatar með eftirfarandi niðurstöðum:

Svaka mikið ofnæmi úr plönturíkinu: Gras, birki, túnsúra, túnfífill, njóli. Ég sýndi viðbrögði við öllu plöntustöffinu sem tékkað var á.

Svaka mikið ofnæmi úr dýraríkinu: Kettir, hundar og ryk(maurar).

Minna ofnæmi (get kannski svindlað stundum): Skelfiskur, heslihnetur, möndlur.

Handleggurinn á mér er ennþá pínu bleikur eftir ævintýrið og þótti Birnu Helenu hann frekar ógeðslegur í skólanum í dag. Mig klæjaði ekkert smá mikið þegar þetta var gert en mikið óskaplega þótti mér þetta áhugavert ferli. Marta hefði skemmt sér konunglega með mér.


Sem betur fer er ég ekki með astma en hún lét mig fá púst af því að ég verð svo slæm í lungunum á sumrin. Reyndar fékk ég fjóra lyfseðla, einn þeirra inniheldur nýja kynslóð lyfja sem ég á að prófa vegna þess að ég venjuleg ofnæmislyf gera mig svo sloj að ég get ekki tekið þau á virkum nema í neyð. Svo sagði hún mér að húðin mín væri spes og þess vegna viðkvæmari en hjá öðrum (ég er s.s. með svona sem hægt er að skrifa á og kem alltaf flekkótt úr sturtu – þetta eru Lerkilundargenin).

Svo er ég náttúrulega með allskonar annað ofnæmi sem ég gleymdi að biðja hana að gá að. Sem dæmi má nefna Ariel þvottaefni, sem ég hata eins og pestina. Viðbjóðsleg ilmvötn og rakspírar og svo náttúrulega ömurlegir pennar og illa staðsett fjölmiðlafólk.

Þetta kostaði sex þúsund ríkisdali en ég er ekki búin að leysa út lyfin ennþá. Svo var hringt í mig í dag og mér var tjáð að þau hefðu misreiknað sig, ég átti víst að borga tæplega níu. Vei.

Næstu læknar á listanum eru bæklunarlæknir, húðsjúkdómalæknir og magalæknir. Það finnst kannski einhverjum þetta læknarugl vera kreisí en ég hef ekki farið meiriháttar í yfirhalningu síðan 1998 og finnst vera kominn tími. Þetta er eins og að eiga sama bílinn alla ævi. Og maður verður að passa hann vel.

Comments are closed.