Feed on
Posts
Comments

Ég varð fyrir því góða láni að vera klukkuð af henni Unni Maríu í vínkeðju sem Vín og matur halda gangandi. Vínið sem ég fékk til smökkunar er ítalskt rauðvín sem heitir Anima Umbra og er frá Arnaldo Caprai sem er lítið fjölskyldufyrirtæki í Úmbríu-héraði á Ítalíu.

Engan betri smakkfélaga en hana móður mína, Önnu Rós Jóhannesdóttur, gat ég hugsað mér. Mamma er mjög hrifin af góðum rauðvínum og hefur bent mér á allnokkur sem mér þykja góð. Að auki var hún sjálf í Úmbríu á síðasta ári og er mjög áhugasöm um vínin frá héraðinu.

Vínið er bragðmikið og alls ekki fyrir byrjendur. Mamma segir það áleitið vín með keim af mintu eða lakkrís og minni jafnvel á leður. Mér tókst að greina að það væri mjög þurrt og mér fannst eins og það myndi henta bragðmiklum mat. Mamma stakk upp á nauti, önd eða villibráð. Ég borðaði með því svínarif, sem var kannski ekki hentugt meðlæti, en ég hefði vel þolað þyngra og meira þrúgandi bragð en það sem ég fékk af þeim. Jafnvel rjúpur eða svartfugl.

En bragðgott er vínið og það er fyrir öllu. Ég mæli með því!

Þeir sem vilja afla sér nánari upplýsinga um vínið geta heimsótt heimasíðu þess sem er hér einnig má nálgast upplýsingar á íslensku hér.

Hann Trausti internetvinur minn og hollustubróðir í mjólk ætlar að vera næsti vínsmakkari. Verðu honum að góðu!

One Response to “Vínblogg um gott rauðvín”

  1. on 02 Aug 2008 at 13:28 Arnar

    Mömmur eru bestar – skemmtileg tilviljun að Anna Rós hafi verið í Úmbría. Takk fyrir bloggið.