Kordelía Fitzgerald
July 19th, 2008 by Helga Þórey
Það er til stelpa sem heitir Anna Shirley og mér þykir alveg óskaplega vænt um hana. Ég kynntist henni fyrst þegar ég var lítil en hún bjó í grænum bókum í hillunni minni.
Anna átti enga foreldra og eignaðist næstum því ekki stjúpforeldra heldur, bara af því að hún var ekki strákur. Fólk sagði henni að hún væri ljót því hún var rauðhærð með glæra húð og freknur. Anna þráði fátt heitar en að vera með spékoppa á olnbogunum, svart hár og að heita Kordelía. Henni fannst Anna ekki nógu skáldlegt. Í staðinn fyrir að verða húsmóðir eins og Díana vinkona hennar (sem var svarthærð og sæt) fór Anna í háskóla. Hún varð aldrei sæt, heldur gáfuð, vel menntuð og glæsileg. Ég ímynda mér að ef ég kæmi til Eðvarðseyjar í Kanada þá sé þar árið 1910 og að hún búi með Gilberti í húsi við læk. Það er svo skrýtið hve góða vini maður eignast í fólkinu í bókunum. Mér þykir miklu vænna um þau heldur en fólkið í Friends eða Beverly Hills (nema þá kannski A.D.).
Að minnsta kosti elska ég Önnu í Grænuhlíð. Hún er alveg ótrúlega sniðug stelpa. Anime þættirnir voru líka æði. Ég vildi að ég ætti þá alla með enskum texta.

