Feed on
Posts
Comments

Archive for July, 2008

Skoðanaskipti

Ég er að hugsa um að hætta við að fara á reunion í Noregi og fara frekar á Madonnu-tónleika í París þann 20. september. Nú er bara að finna einhvern sem langar jafn mikið og mig að sjá Madonnu.

Kordelía Fitzgerald

Það er til stelpa sem heitir Anna Shirley og mér þykir alveg óskaplega vænt um hana. Ég kynntist henni fyrst þegar ég var lítil en hún bjó í grænum bókum í hillunni minni.
Anna átti enga foreldra og eignaðist næstum því ekki stjúpforeldra heldur, bara af því að hún var ekki strákur. Fólk sagði henni [...]

Netvistun

Mikið óskaplega þykir mér Netvistun gera einhæfar heimasíður. Æi, fyrirgefið mér, jú stundum eru kassarnir, sem eru alltaf á síðunum þeirra, með rúnnuð horn.
Skrollið niður til yndisauka.

Grænmeti & ávextir

Ég er hætt að borða mjólkurvörur og hefur aldrei liðið betur. Enda borða ég mikið af grænmeti og ávöxtum í staðinn.

Tímamót

Í dag (laugardag) var ég með fyrstu forsíðufréttina mína, hana má sjá hér!
Mér finnst sérlega skemmtilegt að vera farin að vinna á Fréttablaðinu.

freðinn róni

það er alveg sérlega ljót mynd af mér í fréttablaðinu í dag. hún er á blaðsíðu 24. á henni lít ég út fyrir að vera bólufreðin með bjúg að stíga upp úr 2 ára fylleríi. ég er miklu sætari en þessi mynd. miklu.