Feed on
Posts
Comments

melabúðin

ég skil ekki afhverju fólk er sífellt að röfla um að hún sé svo frábær. í henni er mjög dýrt að versla, þjónustan er fram úr hófi léleg (endalausar raðir) og maður getur ekki mætt fólki á göngunum.

8 Responses to “melabúðin”

  1. on 24 Jun 2008 at 16:45 Trausti

    Þetta er satt. Stórlega ofmetin verslun. Ég hef líka tekið eftir að þar er algengara en annars staðar að vörurnar séu útrunnar (eða mjög nærri síðasta neysludegi).

  2. on 24 Jun 2008 at 17:18 hel

    ógeðsleg okurbúlla

  3. on 25 Jun 2008 at 14:21 Óskar P. Einarsson

    Dýr er hún, jú, en Melabúðin er samt eina búðin á landinu sem ég veit, sem selur (ja, eða seldi) ostrur.

    Mmmmm….ooooostrur!

    Svo er hún líka við hliðina á bestu ísbúð landsins, það er nú ekkert slor.

  4. on 25 Jun 2008 at 18:05 Marta

    Mér finnst þjónustan fín. Hef aldrei lent í að fólk viti ekki um hvað ég er að tala þegar ég spyr… nema einu sinni þegar ég spurði hvenær svartfuglsegginn kæmu og stúlkuræksnið stakk upp á tímanaum – Seinna í sumar, greinilega ekki með varptíma á hreinu ;)

    Ég er hluti af fólkinu sem elskar Melasbúðina :)

  5. on 26 Jun 2008 at 14:22 Unnur María

    Nóatún er stundum líka með ostrur en ekki jafn góðar.

  6. on 26 Jun 2008 at 14:28 Helga Þórey

    til allrar hamingju eru ostrur ekki hversdagsmatur!

    það sem ég mér finnst verst eru raðirnar. einn kassi opinn og 15 manns að bíða. irk.

  7. on 27 Jun 2008 at 00:52 Marta

    iss … mér finnst eiginlega bara dáldið huggulegt að standa í röð í búð, maður getur lesið blöðin og glápt útí loftið. Það finnst mér huggulegt.

  8. on 27 Jun 2008 at 15:02 kristjana

    Eina sinna tegundar eftir og ma hun vera þarna.

    En kannski ekki gaman að borga eða bíða…