Feed on
Posts
Comments

Archive for June, 2008

melabúðin

ég skil ekki afhverju fólk er sífellt að röfla um að hún sé svo frábær. í henni er mjög dýrt að versla, þjónustan er fram úr hófi léleg (endalausar raðir) og maður getur ekki mætt fólki á göngunum.

oðnæmi

ég er í versta ofnæmiskasti sem ég hef farið í lengi. ég er svo slöpp að ég gleymdi að kveðja fólkið í vinnunni áðan. vonandi læknar kestine-ið þetta krapp.
fullt af fólki segir oðnæmi.
fyndið.

Ég verð nebblega spyrill í Poppkvissi á Organ klukkan sex. Þar sem enginn gat rass þegar ég spurði síðast ætla ég að hafa þetta aðeins léttara. Þ.e. ef gáfumenni eins og ég sjálf getur haft þetta létt yfirhöfuð!

Ormurinn hann bróðir minn á ammæli í dag

Lilli-Mjási er 18 ára í dag. Mér finnst svo stutt síðan mamma sagði að hann væri á leiðinni, þegar hann grenjaði á nóttunni, bað um þrískotabyssu í ammælisgjöf og hélt að ryksuga kostaði fimmhundruðkall.
Bráðum hætti ég að kalla hann Lilla-Mjása. Kannski

Fyndið málfar

Úr fréttatilkynningu:
Ólafur F. Magnússon borgarstjóri fór ásamt sendinefnd í formlega heimsókn til Færeyja síðdegis í gærkvöldi.

svör óskast.