Röfl um tónlist
May 15th, 2008 by Helga Þórey
Ég held að ég sinni áhugamálinu öðruvísi heldur en margir aðrir. Ég er ekki ein þeirra sem bíð í ofvæni eftir nýjustu Arcade Fire plötunni eða spegúlera í því hvaða áhrif Bright Eyes eiga eftir að hafa á Indíið. Mér gæti ekki verið meira sama. Útaf þessu lendi ég alltaf í stökustu vandræðum þegar gera á árslista fyrir erlendar plötur og þarf að hugsa mig um vel og lengi. Stundum þarf ég að taka mér tíma og setjast niður með tölvunni eftir að hafa dánlódað heilum ósköpum af tónlist og hlusta og hlusta og hlusta. Mér líður eins og ég sé nokkrum mánuðum of sein.
Ástæða þess er sú að ég er alltaf að læra fyrir tónlist (lesa net og bækur) nú eða skólann. Stundum er ég líka hlusta á aðra tónlist útaf dómaskrifum eða að rúnka einhverjum öðrum nördisma. Sem dæmi má nefna að ég þarf að fylla upp í Zappa-kunnáttuna og ég tek það fram að ég er alger byrjandi í hans katalóg. Maðurinn geðveikur – hann lét Prince líta út eins og auðnuleysingja. Svo hef ég talsvert gaman af djassi og reyni að bæta við nýjum plötum við eins og ég get. Ég hef sérstakt dálæti á Mingus. Smátt og smátt hef ég verið að auka við mig hlustun á klassíska tónlist (þetta hljómar eins og lyfjagjöf) og líkar hún óskaplega vel. Raftónlist (sem ég elska allra mest) þarf ég alfarið að sinna sjálf því það er ekki ein útvarpsstöð á Íslandi sem spilar hana af neinu viti. Sem dæmi má nefna að nýjasta plata Róisín Murphy hefur varla heyrst á Íslandi sökum einhæfrar stefnu útvarpsstöðva – og það hef ég margoft röflað um áður.
Sem kemur mér að efninu. Útaf þessum nördisma og fleiru hafði ég ekki tíma til að hlusta á Overpowered hennar Róisín Murphy áður en að árinu lauk. Sem er ferlegt því að það er svo töff plata – að minnsta kosti skárri en ógeðið Hissing Fauna, Are You The Destroyer sem ég fyrirverð mig fyrir að hafa sett á listann minn fyrir 2007. Mjög meðalmennskulegt af mér og gjörsamlega ófyrirgefanlegt.
One Response to “Röfl um tónlist”

Stundum er Mingus í Fimm fjórðu hjá mér. Við erum nefnilega trúlofuð, ég og hann. Svo er einstöku sinnum raftónlist í Hlaupanótunni, en allsekki nógu oft. Og íslenskar playlistaútvarpsstöðvar eru bókstaflega loðnar af leiðindum. Jamm.
Lana Kolbrún Eddudóttir
Djassmunkurinn á Rás 1