Feed on
Posts
Comments

matur og asni

ég ætlaði að skrifa langa færslu um mat en ég nenni því ekki. í staðinn koma stikkorð. taco, heimagert: guacamole og pico de gallo, páskaegg, heimagerðar pizzur með sósu à la helga þórey, enskur cheddar ostur, pistasíulamb, rauðvín, ostur og kex og te, ísblóm, hvítvíns-spritzer, nautasteik, salthnetukaka, nachos, kókakóla og bananabrauð.

en það var ekki það sem ég ætlaði að tala um… það er af sem áður var þegar páskarnir voru sikk kreisí dagar, litaðir af löngum vöktum, aðskilnaði frá fjölskyldu og djammi. nema náttúrulega þegar ég vann á börum þá vann maður á djamminu og langaði pínu til að grenja þegar heim kom. í ár hafði ég mig ekki út yfir páskahátíðina fyrr en á sunnudegi og fannst ekkert sérlega gaman. ég hitti reyndar skemmtilegt fólk sem mér þykir vænt um en ég tala hvorteðer við þau í síma eða á msn og hitti þau reglulega og finnst það miklu skemmtilegra. hinsvegar gerðist sá merki atburður að ég hitti leiðinlegu pæjuna aftur.

(ég er ekki hrifin af því að úthúða fólki á blogginu mínu. mér finnst það vera afskaplega hallærislegt uppátæki – að minnsta kosti að gera það persónulega. eftir að ég fór að skrifa um tónlist hefur fólki þótt ég vera fair game í þessum efnum svo að ég reyni mitt besta að leggjast ekki niður á þeirra illa rökstudda plan)

eníveis þá er leiðinlega pæjan vinkona stelpu sem ég þekki. reyndar vann ég á móti henni fyrir nokkrum árum en hún hefur aldrei kosið að sýna mér vinskap, ja eða bara lágmarks kurteisi. nema áður en ég hætti að reykja og hana vantaði kompaní í smók – segjum það. fyrir nokkrum mánuðum var ég stödd laugaveginum og var að spjalla við kunningja minn, kemur þá leiðinlega pæjan aðvífandi, æpir á hann að koma og dregur á brott. mér var svosum sama – enda eru þau áreiðanlega betri vinir en ég og hann. ég heilsaði henni kurteisislega og brosti en þá segir hún hæ án þess að líta á mig og labbar í burtu. ég var frekar hissa en hugsaði að kannski væri hún skotin í honum og því eitthvað tens á því – mér datt ekki í hug að fullorðin manneskja gæti verið svona mikill dóni. svo að ég pældi ekki meira í því fyrr en um daginn þegar ég rakst á hana aftur og spurði um sameiginlegu vinkonu okkar. þá svarar leiðinlega pæjan því að vinkonan sé heima með nýja kærastanum. ég vissi ekki neitt og spurði hana hver það væri, þá lítur hún á mig snöggt, snýr sér undan og heldur áfram að tala við einhvern gaur. á sunnudaginn rakst ég aftur á hana og var hún þá við sama heygarðshornið.

mér finnst þetta mjög skrýtin hegðun. ég hef aldrei þekkt hana neitt sérstaklega nema í gegnum vinnu. ég hef ekki stungið undan henni, verið leiðinleg við hana né nokkuð annað í þeim dúr. hún er of fín með sig til að koma á sirkus svo að ég hef aldrei verið vond við hana þar (eins og kennarann minn, omg!) og ef hún kom á kbar þá hef ég pottþétt verið næs við hana. svo að ég er eiginlega farin að hallast að því að hún sér bara asni og merkikerti. ég nenni að minnsta kosti ekki að meðvirkast yfir þessu – en það er betra að hafa komið því frá sér.

svo að ég flissa yfir þessu eiginlega – eins og fýlupúkum yfirhöfuð. ekki nenni ég að vera svona leiðinleg við fólk, ég hef aldrei fílað það og er bara mjög glöð yfir því að þurfa ekki að vera svona sjálf.

One Response to “matur og asni”

  1. on 27 Mar 2008 at 10:49 kristjana

    :) þekki svona pakk…

    iss það er alstaðar, maður á bara alveg að dissa það