ælupest (grafískar lýsingar – ekki fyrir aumingja og teprur)
February 5th, 2008 by Helga Þórey
ég lenti í því stórkostlega láni í gær að fá þessa ógeðslegu magapest sem hefur verið í umræðunni. þvílíkur viðbjóður að sitja á klósettinu með skúringafötuna í fanginu upp á náð og miskun einhverrar veirutussu. tilfinningin er eins og að tapa 14-2, maður náði allavega á klósett og í fötu. þar fyrir utan má lepja leifar sjálfsvirðingarinnar innan úr klósettskálinni eða af gólfinu, með ælukrampa/ekka og tárin í augunum.
dagurinn í dag er betri þótt ég sé ennþá að vinna upp vökvatapið. klukkan er fimm og ég hef bara pissað þrisvar síðan í gærmorgun.
p.s.
hvað þýðir eiginlega í umræðunni? eitt símaspjall, þrjú blogg, ein frétt og/eða eitt til tvö msn samtöl?
eða þýðir það kannski tvö til þrjú mannvitsskert moggablogg? ég skil þetta ekki.
5 Responses to “ælupest (grafískar lýsingar – ekki fyrir aumingja og teprur)”

“Mikið í umræðunni í bloggheimum”: Vitskertir moggabloggarar eru duglegir við að tengja við fréttir á mbl og Stebbi Fr skrifar fleiri en þrjár færslur um málið á einum og sama deginum.
Svona skilgreinist þetta.
já – en hvað með allar fréttirnar sem mbl.is nennir ekki að birta? sem dæmi má nefna að umfjöllun mbl-vefsins (ekki blaðsins) um sirkus var í algeru lágmarki og þ.a.l. komst málið aldrei í ‘umræðuna’ á moggablogginu.
þau geta nebblega ekki talað um neitt sem ekki er hægt að tengjast (sbr. stebbi fr. og 15þús orð um kosningabaráttuna í BNA á hálfum sólarhring) hvað er annars málið með vísi? afhverju eru vísisbloggararnir svona low profile? maður sér varla tengingu við frétt þar.
Hey, ekki bend’á mig, mér finnst þetta ekkert frekar meika sens.
“Í umræðunni” að mínu viti er eitthvað sem er tekið fyrir á kommúnunni punkti is.
a.m.k. er mbl.is full valdamikið apparat þegar kemur að því að ákveða hvað eigi og eigi ekki að vera ‘í umræðunni’…
annars les ég bara huffingtonpost.com núna. voða skemmtilegir þessir vinstrisinnuðu kanar.
æj og úff, vonandi batnar þér fljótt. þessi pest er algjört helvíti. í mínu tilviki var þetta svona: ég á klósettinu með pípandi, kastandi upp um leið í fötuna sem ég hafði í fanginu!! ojj mig hryllir við tilhugsunina.