Posted in Almennt on February 29th, 2008 1 Comment »
í dag hefur göngu sína poppkviss á organ.
keppnin hefst klukkan sex og eru reglurnar eru þær að tveir verða saman í liði og svara saman 30 tónlistarspurningum.
einn kassi af bjór er í verðlaun.
spyrill dagsins er valgeir guðjónsson popphetja.
be there or be square!
Posted in Almennt on February 23rd, 2008 Comments Off
af hverju kenna sumir kennarar í verkefnaviku og láta ekki vita af því? mér finnst ekki sniðugt að missa af tíma þar sem eru sýndar illfáanlegar kvikmyndir. ég hef aldrei áður vitað til þess að maður sé ekki látinn vita.
Posted in Tennur on February 20th, 2008 Comments Off
ég vaknaði uppúr klukkan átta í morgun án þess að klukka, kærasti eða sími ættu þar nokkurn hlut að máli. ég vakti einar, hringdi svo í pabba og suðaði í honum að skutla mér til tannlæknis. ég hafði ekki séð meldinguna frá tannsa fyrr en í morgun sökum þess hve áhugalaus ég er orðin um [...]
Posted in Almennt on February 12th, 2008 3 Comments »
síðastliðinn laugardag skrifaði ég stuttan pistil um hvað mér þykir það fyndið þegar fólkið á mbl.is bloggar og tengir við selebafréttir sem það hatar og merkir þær hverjum er ekki sama? . sumir íslendingar virðast vera mjög viðkvæmir fyrir slíkum fréttum. það er eins og okkur líki ekki að einhver sé álitinn merkilegri en aðrir [...]
Posted in Almennt on February 11th, 2008 Comments Off
djöfull geta þessar myndir verið ógeðslega langar – ég er búin að ná því að þú ert að fjalla um óraunhæfar væntingar og drauma, herzog!
Posted in Almennt on February 11th, 2008 4 Comments »
mér finnst það svo vandræðalegt að villi vill sé ekki hættur í stjórnmálum. þegar ég horfði á hann og simma í kastljósinu í síðustu viku hugsaði ég: maðurinn er ekki bara blindur á eigin ábyrgð í REI-málinu, hann sér ekki að meirihluti íslendinga álítur hann hálfvita og að sú skoðun breiðist út með hverri mínútu [...]
Posted in Almennt on February 11th, 2008 1 Comment »
ég byrjaði á því að hitta marý og svo fórum við saman á opnun sýningar hildigunnar í nýló. að því loknu hitti ég marra í pubkviss en þar skemmtum við okkur konunglega áður en við drifum okkur á hamingjustund á organ. á organ slóst halldóra í hópinn áður en marri kvaddi og saman skunduðum við [...]
Posted in Almennt on February 9th, 2008 3 Comments »
mér finnst alltaf svo ótrúlega fyndið að lesa fréttir um britney spears og aðra seleba á mbl.is vegna þess að mjög oft tengir einhver snillingurinn bloggið sitt við fréttina og við lesendum blasir í litla blogg-kassanum eitthvað á þessa leið: hverjum er ekki drullusama um britney spears?
þeir sem klikka á fréttina, lesa hana og [...]
Posted in Almennt on February 5th, 2008 5 Comments »
ég lenti í því stórkostlega láni í gær að fá þessa ógeðslegu magapest sem hefur verið í umræðunni. þvílíkur viðbjóður að sitja á klósettinu með skúringafötuna í fanginu upp á náð og miskun einhverrar veirutussu. tilfinningin er eins og að tapa 14-2, maður náði allavega á klósett og í fötu. þar fyrir utan má lepja [...]
Posted in Almennt on February 1st, 2008 4 Comments »
ýmsir bloggarar verða á vegi mínum þegar ég rúnta lendur internetsins. mig langar til að fjalla um nokkra sem eru ekki á tenglalistanum mínum en ég skoða oft mér til fræðslu og/eða skemmtunar.
eftirfarandi lesist upphátt í svipuðum tón og fegurðardrottningar eru kynntar á broadway á vorin.
www.trausti.blogspot.com
ég fíla trausta. hann bloggar um mikilvæga hluti eins og [...]
Posted in Almennt on February 1st, 2008 3 Comments »
og mér finnst það ekkert mál. reyndar hef ég stolist í smók og smók þegar ég hef fengið mér bjór en það er nú ekki eins og ég fari oft út svo að það bíttar ekki svo miklu. ég verð samt að viðurkenna að það þykir mér langerfiðast, að sleppa því að reykja með áfengi. [...]