björgum sirkus January 23, 2008

tekið af rúv.is
Helgina 25.-27. janúar næstkomandi ætla hundruðir íslenskra tónlistarmanna að rísa upp og mótmæla niðurrifi húsa í miðbænum. Þeir ætla að koma saman á Sirkus á Klapparstíg 30 og standa fyrir stanslausri tónleikaveislu gegn niðurrifi húsa í miðbænum. Yfirskrift samkomunnar er Látíð í bæ og með henni vilja þeir koma þeim skilaboðum til borgaryfirvalda og verktaka að þeir verndi og viðhaldi húseignum í miðbæ Reykjavíkur í stað þess að rífa þær niður. Þeir vilja forða því menningarslysi sem nú er í uppsiglingu.
Sirkus og reyndar allur sá reitur sem húsnæði barsins stendur á tákngerir vel þá “allsherjartiltekt” sem fara á fram í miðbænum þar sem sérstæða miðbæjarins og fjölskrúðugu mannlífi hans er fórnað en í staðinn reynt að líkja betur eftir verslunarkjörnum úthverfanna. Með því að skera á þessa slagæð í hjarta Reykjavíkur er því styrkur miðbæjarins í að fá að vaxa og dafna á eigin forsendum gjörsamlega hunsaður.
Allur sá fjöldi tónlistamanna sem tekur þátt á látíðinni og leggur nafn sitt við verkefnið hefur reglulega leikið eða lagt leið sína á Sirkus og ber þannig stórgóðu vitni því síkvika tónlistarlífi sem fram hefur farið á staðnum. Um leið er vakin athygli á það ómetanlega menningarlega verðmæti sem skapast hefur í kringum Sirkus en virðist virt að vettugi þar sem það verður ekki fært í krónutölur.
Þeir listamenn sem taka þátt í tónlistarhátíðinni Látíð í bæ á einn eða annan hátt (í orði eða á borði) eru:
1985!, Amiina, Ampop, Barði Jóhannsson, Berglind Ágústsdsóttir, Bob Justman, Benni Hemm Hemm, Bloodgroup, Bogomil Font, Borkó, Botnleðja, Cocktail Vomit, Curver, Dr. Gunni, Flís, Ghostigital, Gusgus DJ-set, Hjaltalín, Hjálmar, Hudson Wayne, Jagúar, Jakóbínarína, Jan Mayen, Kira Kira, K.K., Megas, Motion Boys, Mr. Silla & Mongoose, Mugison, Music Zoo, múm, My Summer as a Salvation Soldier, Orgelkvartettinn Ananas, Páll Óskar, Pétur Ben, Rass, Trabant Experience, Retro Stefson, Reykjavík!, Seabear, Singapore Sling, Sigur Rós, Skátar, Skakkamanage, Slowblow, Sometime, Sprengjuhöllin, Valgeir Sigurðsson, XXX Rotweiler, Æla, Ölvis
mig langaði bara að vekja athygli á niðurrifi sirkus. mér þykir vænt um sirkus
Jahá.
Verandi nánast hættur að fara í bæinn á “djammið”, þá spyr ég mig samt hvað tekur við af Sirkus. 22 kannski?