besta sem ég hef lesið
January 19th, 2008 by Helga Þórey
ég kíkti á heimasíðu istóns áðan. bara svona til þess að rekast á það fyndnasta sem ég las á síðasta ári. en það voru umsagnir dómnefndar á tilnefningum síðasta árs. þær má finna hér.
guðdómlegir frasar:
sérstakasta gulrótin í matjurtagarðinum.
popp með lúðrasveitaívafi er sjaldgæft og því sérstakt.
söngvarINN.
svo er rökstuðningurinn æði og svipar til rökstuðnings árna m. í dómaramálinu ógurlega. nei, ég tek það tilbaka, rökstuðningur dómnefndar ísl. tónlistarverðlaunanna er miklu, miklu betri!
ég get ekki beðið eftir því að sjá hvernig umsagnirnar verða í ár. segið svo að jólin séu ekki í janúar!
