Helga Þórey í Undralandi undrast

Sjálfskipaður talsmaður neytenda gubbar út úr sér hræsni og öðrum sannleik

sjónvarp um jólin December 26, 2007

Filed under: Almennt — Helga Þórey @ 3:40 pm

boot-camp?


December 21, 2007

Filed under: Almennt — Helga Þórey @ 3:33 pm

annars er ég ógeðslega stressuð yfir einkunum. ég lærði og lærði og lærði en fékk alveg ferlegar spurningar og mundi ekki neitt sem ég veit að ég kann. úff & oj. og ef ég næ ekki, fæ ég ekki námslán og það allt. ég á heldur ekki neina peninga og veit ekki hvernig ég á að galdra fram jólagjafir á þeim fáu aurum sem eru til. það er ekki gleðilegt ástand að geta ekki gefið jólagjafir :(


moggablogg og femínistaótti (eða bara hroki í mínu boði)

Filed under: Almennt — Helga Þórey @ 2:47 pm

ég dett oft inn á hin og þessi blogg í kjölfar lesturs míns á mbl.is. moggabloggin eru ansi mögnuð og sum hver alveg ágæt. en það er með moggabloggið eins og svo margt annað - heimskingjarnir birta innihaldsrýrar hugsanir sínar þar sem og annarsstaðar.

það nýjasta á moggablogginu er að hata femínista. greinarnar sem útlista þessu sérstæða hatri eru skrifaðar af fólki af báðum kynjum, á hvaða aldri sem er. svo ég vitni nú í eina mannvitsbrekkuna þá eru femínistar fúlar kellíngar sem fá ekki að ríða, hata karlmenn af því að þeir berjast opinberlega gegn nauðgunum og þar fram eftir götunum. sóley tómasdóttir er vinsæll skotspónn þessara bloggara en hún ku vera ansi herská í augum margra. ég er ekki 100% sammála öllu sem hún tekur sér fyrir hendur eða útvarpar skoðun sinni á - en í meginatriðum erum við sammála um það að konur og karlar eigi að njóta sömu tækifæra í lífinu og að kynbundnu ofbeldi verði að ljúka. mér dettur ekki í hug að allir karlmenn nauðgi eða lemji konur. ég veit líka að það fyrirfinnast konur sem nauðga, lemja og misnota. engu að síður eru það í langflestum tilfellum karlmenn sem nauðga og eru með annan bavíanahátt. er það ekki ljóst mál? mig minnir að gerendur séu í 98-99% karlmenn og þolendur séu svipuð prósenta af konum. með það fyrir augunum finnst mér svosem ekkert tiltökumál að einhver jólasveinn segi að hann vilji ekki að karlar nauðgi. svo er það líka annað; ég vil líka að karlar hætti að nauðga. þær vinkonur sem ég á sem hefur verið nauðgað eða misnotaðar hafa í öllum tilfellum verið fórnarlömb karla. ég tek það fram að mér finnst ekki óþægilegt að labba ein um fáfarna götu ef stelpa labbar fyrir aftan mig en frekar óþægilegt ef það er strákur. og hvað þetta varðar á er ég hluti af helmingi mannkyns. allar stelpur sem ég þekki vita hvað það er óþægilegur hlutur að þurfa alltaf að vera meðvitaður um smæð sína í samhenginu kynferðisofbeldi. það er óþolandi að finnast t.d. vera óþægilegt að vera með einhverjum í lyftu, tala við kalla sem horfa bara á brjóstin á manni eða að vera einn á leið heim til sín í myrkri. konum er nauðgað í miðbænum um næstum því hverja helgi. í húsasundum, á klósettum á skemmtistöðum, í heimahúsum, bílum og hvar sem er. þetta þýðir ekki að ég haldi að allir karlmenn nauðgi, þetta þýðir að ég geri mér grein fyrir að nauðgarinn birtist í gervi karla.

annað… það kemst alltaf í heimsfréttirnar þegar kona er dæmd fyrir kynferðisafbrot. einnig er mikið rætt um það þegar einhverjar konur ljúga nauðgun upp á karla (það er náttúrulega ferlegt mál en má engu að síður ekki nota til að skyggja á hinn raunverulega vanda). hinsvegar er enginn að pæla í því þegar það þykir ekki vera næg sönnunarbyrði til þess að dæma nauðgara þótt að fórnarlamb hans (kona) hafi þurft að fara í lýtaaðgerð á píkunni eftir meðferðina. eða stelpan sem er svo geðveik af því henni var nauðgað svo ógeðslega þegar hún var lítil að hún getur ekki átt samskipti við fólk - var hún kannski að biðja um þetta?

eitt af fíflunum sem röflaði frá sér síðustu heilafrumurnar þrjár sem héldu honum skrifandi sagði að íslenskar konur ættu nú bara að hætta að vera svona ógeðslega lauslátar. blablabla… hey, er það ekki hluti af persónufrelsi hvers og eins að mega ríða hverjum sem þeim sýnist án þess að það þyki allt í lagi að nauðga þeim? fyrir utan eitt: hverjum eru þessar meintu lauslátu konur að ríða? hverri annarri? þurfa ekki að vera til lauslátir karlar til þess að ríða þeim? í hverjum einasta vinahóp sem ég hef verið í hefur einhver verið meira fyrir að höstlið en sá næsti. stundum eru það stelpur, stundum strákar. mér er alveg sama hvað fólk gerir á meðan það misbýður ekki sjálfu sér. og plís, þessir dirty weekend gaurar… þeir eru nákvæmlega eins og íslenskir karlmenn (eða konur) haga sér í útlöndum.

eníveis - þá finnst mér bara svo leiðinlegt hvað fólki finnst það vera neikvætt að vera femínisti, því að mér finnst það vera neikvætt að vera ekki femínisti. ég hef ekkert við fólk að tala sem hefur ekki áhuga á jafnrétti eða telur sér trú um að staða kynjanna sé orðin jöfn. ég bara skil ekki í hvaða heimi það býr. ég var að lesa í kvikmyndafræðibók núna fyrir próf grein eftir einhvern kvikmyndafræðing sem segir að almenningur vilji ekki gangast við því að hollywood-myndir séu formúlu-myndir sem eru matreiddar ofan í hann skv. því sem bransinn ákveður. ástæðurnar eru þær að almenningi er svo illa við að uppgötva að það sé verið að ljúga að sér og þess vegna haldi hann dauðahaldi í veikburða rök sem þeim eru matreidd. ég er löngu orðin vön því að fólk vilji ekki fræðast - það hefur bara meiri áhuga á því að græða peninga, kaupa flatskjá, eiga flott stígvél eða kaupa geðveikan kjól. á meðan sit ég heima hjá mér og klóra mér í hausnum yfir furðulega viðhorfi fólks til sjálfsagðra mannréttinda. er ég ein um það?


að læra December 19, 2007

Filed under: Almennt — Helga Þórey @ 1:27 am

ég er búin að vera heillengi að læra að læra.


Haust December 12, 2007

Filed under: Almennt — Helga Þórey @ 1:15 pm

Jah, þar sem ég er búin að fá þrjár flensur á þessari önn þá bara varð ég að bæta við þriðju frunsunni.


Ætlar þú að dansa á balli í Árseli? December 4, 2007

Filed under: Almennt — Helga Þórey @ 6:23 pm

Það var á fallegu vetrarkvöldi fyrir nákvæmlega tíu árum að mér bárust þær fregnir að Sigríður Árnadóttir vinkona mín væri látin. Ég var nýkomin heim úr vinnu en deginum hafð ég einmitt eytt með henni. Það var gríðarlegt áfall að sjá á eftir þeirri skemmtilegu stelpu. Sá neisti sem glæddi Siggu lífi er ógleymanleg gjöf til okkar sem þekktum hana. Þvílík forréttindi, þvílík manneskja! Ég man eftir henni eins og ég hafi séð hana í gær vappandi um á S2. Brúnu krullurnar og gráu augun. Pönnukökur á sunnudögum, bakarísferðir og göngutúrinn heim í Sörla. Já, nú verður að fara að drífa þig af stað til hennar mömmu þinnar Sigga mín! æpti hún á sjálfa sig þar sem hún bjóst til ferðar. Perlu- og Kúluland söng hún um og dúkkunum var alltaf raðar rétt. Skrípakallarnir sem hún teiknaði og kasettutækið. Þagnarspjöld, púsluspil og Ársel. Viltu sýna mér ökuskírteinið þitt, Helga? Finnst þér góðar pönnukökur með sultu og rjóma, Helga? Maður á ekki að tala við ókunnuga, Helga!

Ég hugsa ennþá oft til hennar. Það er svo skrýtið með þá sem eru dánir. Maður heldur áfram að sakna þeirra, það er bara eins og það venjist einhvernveginn. Stundum kaupi ég mér hrossabjúgu og elda með uppstúf og karpellum. Þá verður mér hugsað til Siggu. Pönnukökur með sultu og rjóma eru ekki eftirlætismaturinn minn, en stundum fæ ég mér eina henni til heiðurs. Þannig móta litlir hlutir úr lífi hennar, lífið mitt í dag. Enda er ég fullkomlega sátt við að segja karpellur. Það er líka svo miklu skemmtilegra. Sigga kenndi mér að margt getur verið miklu skemmtilegra eins og hún gerði það.


Á þetta að vera fyndið?

Filed under: Almennt — Helga Þórey @ 5:21 pm


logo
Hvem er du i Mummidalen?

Mitt resultat:
Lille My
Du er Lille My! Du elsker spenning og er veldig rampete. Du er også veldig direkte og sier ofte ting rett frem uten å tenke over hvem du kan såre.
Ta denne quizen på Start.no


Svínka II

Filed under: Almennt — Helga Þórey @ 1:26 am

Hingað erum við komnar aftur - saman tvær. Við sitjum andspænis hver annarri og vonum að hin klári verkið. Í þetta sinn horfir hún á mig í gegnum andlit þriggja glaðbeittra manga-jólastelpna. Þær eru að rétta mér jólapakka sem hefur verið skrifað á með japönsku letri. Mig langar til að opna þá.

Svona hljómar geðveikisbullið sem kemur uppúr mér þegar ég er að reyna að komast hjá því að skrifa það sem ég á að skrifa. Og get stundum alveg ágætlega. Ritgerð. Enn ein prófatörnin og enn ein vökunóttin andspænis elsku tölvunni minni, henni Svínku II.

Ég ætla að halda áfram…