Helga Þórey í Undralandi undrast

Sjálfskipaður talsmaður neytenda gubbar út úr sér hræsni og öðrum sannleik

Í sjöunda himni! September 23, 2007

Filed under: Almennt — Helga Þórey @ 11:07 pm

Eftirlæti mitt um þessar mundir eru hinir frábæru þættir 7th Heaven. Það skiptir engu máli í hvaða vanda séra Eric Camden og fjölskylda lenda í, alltaf eru þau leyst á farsælan hátt. Og af vandamálum er nóg. Óletta vinkona hans Matts, sem sá aðeins tvær lausnir þegar barnið kom undir; ættleiðingu eða eiga það sjálf. Orðið fóstureyðing kom aldrei fram - ekki einu sinni í framhjáhlaupi. Í Sjöunda himni eru þær ekki til. Um daginn var systir Erics (og föðursystir krakkanna hans fimm) gestur fjölskyldunnar. Við heimsókn hennar kom í ljós að hún er áfengissjúk og þurfti á hjálp að halda. Eric gat ekki hugsað sér annað en að afvatna konuna inni á heimilinu - en þrátt fyrir að vera erfitt fyrir alla hlutaðeigandi, komst fjölskyldan í gegnum hremmingarnar og allir voru hamingjusamir á Þakkargjörðardaginn - þar sem btw. börnin elduðu máltíð fyrir átta manns.

Ég er að bíða eftir því að Matt eða Mary fari á fyllerí eða geri einhvern alvarlegri óskunda en að rispa brettið á bílnum. Þegar fulla frænkan var í heimsókn var Mary mjög fúl en svo hætti hún því og lánaði frænku snyrtidótið sitt. Matt var líka settur í straff vegna þess að hann laug - reyndar komst það upp síðar að hann var bara að hjálpa óléttu vinkonu sinni og straffinu því aflétt.

Í kvöld var sýndur sá þáttur sem mér þykir í bestu sambandi við raunveruleikann af þeim sem hafa verið sendir út. Jú, Camden hjónin og foreldrar hans rifust. Þau rifust um það hvert þessara tvennu hjóna fengju nú að ætteiða munaðarlausa drenginn sem enginn vildi því hann var orðinn níu ára. Þetta fólk lætur Brendu og Brandon líta út eins og mígandi fulla róna með lús.

Enn á ég eftir að sjá einhvern svartan í þáttunum. Jú! Ég var búin að gleyma. Um dagin komu vinir þeirra í heimsókn, þau voru svört, og þau voru nákvæmlega eins. Með fimm krakka og alveg nákvæmlega jafn heiðarleg og Camden fjölskyldan. Svart fólk er nefninlega allt í fína ef það er eins og hvítt, að minnsta kosti í 7th Heaven.

Já það er gott að eiga Camden hjónin að.


Veikur situr haki September 4, 2007

Filed under: Almennt — Helga Þórey @ 12:45 am

Mikið óskaplega rigndi þegar ég hjólaði í skólann í morgun. Þegar ég kom í tíma voru buxurnar og stil-longsurnar mínar blautar í gegn og mig klæjaði áberandi mikið í lærin fram að hléi. Þá gat ég reist mig upp, gengið aðeins um og þurrkað síðustu rakaleifarnar úr buxnaplöggunum mínum.

Ég fjárfesti í fleiri dýrum bókum sem ég hef í raun ekki efni á og fór svo í annan tíma sem virtist ekki aðeins áhugaverður heldur innihélt mjög fyndinn kennara. Að þessu loknu dreif mig heim undir sæng til þess að lækna hálsbólguna mína og hætta bráðum að tala eins og Janis Joplin.

Ný-lífið sem átti að hefjast í dag hefur því verið frestað um nokkra daga.

Ég ætla að horfa á Hroka og hleypidóma. Það er það næsta sem ég kemst því að læra heima í bókmennta- og kvikmyndafræði.