Skammist ykkar
July 4th, 2007 by Helga Þórey
Ég hef lengi vitað að málefni fatlaðra væru í hræðilegum ólestri. Ekki bara fá starfsmenn sem fatlaða og þroskahefta aðstoða skammarlega lág laun heldur fá þau sjálf alveg ferlega illa borgað.
Þetta er ágætt dæmi um það hvernig yfirvöld kjósa að líta á fatlaða og þroskahefta sem annars flokks borgara. Ég hef líka séð að þau geta unnið alveg jafn vel og við, þau mæta líka oft betur og eru mun sjaldnar þunn, þreytt, illa fyrir kölluð, með veikt barn, eða bara nenna ekki að mæta.
Þrátt fyrir þetta get ég fullyrt að Reykjavíkurborg greiðir starfsmönnum sínum betur en ríkið gerir. Ég hreinlega trylltist af bræði þegar ég sá launaseðil skjólstæðings míns í fyrsta sinn um árið. Sveiattan og ullabjakk. Mér finnst að fólk ætti að hugsa sig um og skerpa á verkalýðsvitund sinni. Við eigum ekkert annað í baráttu okkar við spillt og sérhlífið kerfi. Fólk sem býr við fötlun eða aðra skerðingu á ekkert nema okkur. Sinnum þeim.
