Feed on
Posts
Comments

Archive for May, 2007

fréttir

í dag skrifaði ég nafnið mitt á mjög mörg blöð sem lauk með því að ég er orðin íbúðareigandi í fyrsta sinn.

meiriháttar

það eina sem mig langar að gera er að halda áfram að skoða tónlist.is og samninga þeirra við útgefendur og fleiri. en ég má það ekki.

17. maí

Þar sem þjóðhátíðardagur Noregs er í dag ætla ég að skrifa þessa færslu á norsku – mætti æfa mig meira í að skrifa hana.
Stavanger besöker meg ofte. Jeg drömmer at jeg er på vei til skolen, på besök hos Marie eller at jeg sitter ned i Hafrsfjord sammen med venner. Stokkavatnet er der også, spesilelt [...]

1. sæti

Sigurvegari í heimsmeistarakeppni internet-lánastofnanna-reiknivéla er Helga Þórey Jónsdóttir. Af öllum keppendum hefur hún eytt mestum tíma daglega í að notfæra sér mismunandi reiknivélar bankanna á afskaplega fjölbreytta vegu. Hún hefur prófað flestar samsetningar lána með tilliti til mismundandi greiðslugetu, verðs og vaxta. Auk þess getur hún rætt gengissveiflur undanfarinna ára og tekið samkvæmt þeim meðvitaða [...]

Annar dagur sem lætur mig langa í lögfræði

Ég sótti bílinn klukkan níu. Ég þeyttist um bæinn að sækja pappíra og viðurkenningar. Skuldir, greiddar skuldir, launaseðlar, yfirlit, samningar, framtöl og gögn. You name it, i got it. Því næst fór ég í bankann og ræddi við nýja uppáhalds þjónustufulltrúann minn. Hún er mjög almennileg kona – sjaldséður hrafn. Það sama er ekki hægt [...]

frú

tíminn líður svo hægt. ég er löngu hætt að fá nokkra ánægju út úr því að svara í símann, skrá og klippa. ég gæti ekki unnið við þetta alltaf. en þetta er bara í dag (og reyndar smá í gær).
á morgun fer ég á vit örlaganna og ég verð að fá það sem mig [...]

hey…

ég vinn við að hlusta á tónlist. djöfull er ég ógeðslega heppin!

deal with it

já. eins og ég var að segja við gagnrýnisguðinn, þá nenni ég ekki að hlusta á þetta væl. allt í lagi að ræða dómana mína við mig en kommon! ég bakka ekki með þá – sérstaklega ekki þegar sama fólkið þarf að eiga sama samtalið við mig aftur og aftur. ég kalla það suð. mér [...]

spurning

er það bara ég eða er íbúðalánasjóður með mjög afleit kjör? ég er orðin höll undir frjálsa fjárfestingabankann + lífeyrissjóðsslán/landsbankalán. hvort ætti ég að sækja um frekar af þeim tveimur? og hvar fær maður annars lán á lágum vöxtum? mér finnst yfir 5 % vera með yfirdráttarheimildarfnyk.
ég var að borga dálítið háa innlánsvexti þessi [...]