Feed on
Posts
Comments

Lóan er komin

Af vef Morgunblaðsins 27. mars 2007:

Í morgun sá Björn Arnarson starfsmaður Fuglaathugunarstöðvar Suðausturlands fyrstu tvær heiðlóur ársins á flugi við Einarslund, en þar er stöðin með aðstöðu við fuglamerkingar. Á síðustu árum hafa fyrstu lóurnar sést á tímabilinu 20. -29. mars en það verður ekki fyrr en undir miðjan apríl sem lóurnar fara að streyma til landsins. Þetta kemur fram á vefnum Horn.is.

Comments are closed.