Ný Helga January 28, 2007
Jehe. Þá er ég loksins orðin Wordpressari. Mikið er ég fín. Þetta er lúkk númer 14 sem ég prófa. Sjáum hvað gerist…
Það er ekki hægt að logga sig inn til að sjá læstar færslur í bili.
Jehe. Þá er ég loksins orðin Wordpressari. Mikið er ég fín. Þetta er lúkk númer 14 sem ég prófa. Sjáum hvað gerist…
Það er ekki hægt að logga sig inn til að sjá læstar færslur í bili.
Vá, hvað ég valdi mér skemmtilegt nám. Það er svo gaman að læra heima að mig langar ekki til þess að gera margt annað!
í dag var fyrsti dagurinn minn sem háskólakona - það var nú aldeilis gaman. það ótrúlega er að ég hef fundið ný gönguljós til þess að agnúast yfir. ef ég væri ekki vör um mig vegna ægilegrar reynslu minnar á suðurlandsbrautinni þá hefði ég verið drepin í fyrradag þegar ég gekk úr bóksölunni og yfir hringbrautina. alltaf að flýta sér þessir klikkhausar.
annars er yndislegt að vera loksins að gera eitthvað sem ég hef áhuga á. mér finnst ég vera ný kona. svo er ég líka búin að vera að taka til á þessu blessaða bloggi. ótrúlegt hvað mér hefur dottið í huga að búa til marga flokka sem ég nota einu sinni eða aldrei. þannig ef að einhver hefur ekki komist inn þá ætti það að vera komið í lag.
ég ætla að horfa á bíómynd í kvöld.
Mér finnst eins það hafi gerst í gær. Ég, Rannveig og Laila hlóðum hjólaskautan fullan af útileigudóti og fórum á Uxa. Uxi var heldur betur skemmtilegur og ef ég væri jafndugleg að skanna inn gamlar myndir og mig langar, þá myndu þær birtast hér hver á fætur annarri. Okkur leiddist ekki, sérstaklega ekki í fallegu buxunum sem við keyptum okkur. Ég man eftir afgirta stelpuklósettinu - það besta sem ég hef komist í tæri við á nokkru festivali. Svo spiluðu líka Atari Teenage Riot og margir fleiri. Það væri gaman að komast í bandlista eða eitthvað álíka frá Uxa. Ég held að ég eigi diskinn minn einhversstaðar…
Hann er kominn aftur. Tannverkur sem ekki verður læknaður án kódíns. Djöh! Þetta er samt ekkert miðað við endajaxlana í fyrra. Það var ógeð. Þetta er bara ljótt. Ég þarf að passa mig að brosa ekki of mikið, þá sjást agaleg göt þar sem glæsilegir forjaxlar mínir bjuggu áður. Ég er eins og tannlaus róni. Á þriðjudaginn verður síðan tosað í augntönnina sem hefur falið sig fyrir mér síðan alltaf. Hún liggur inni í gómnum mínum og Tannsi sagði í gær: Ég ætla ekki að ljúga að þér, þetta verður viðbjóðslega vont. Þá get ég byrjað að láta mig kvíða fyrir því. Neinei.
Á meðan götin í munninum mínum gróa ligg ég í bælinu með hátt undir höfði. Ég hlusta á tónlist bæði mér til skemmtunar og fyrir vinnuna á meðan ég hangi á netinu eins og herforingi. Ég óska þess að væri búin að kaupa stýripinnann sem mig vantar svo að ég geti spilað alla Pleysteisjon leikina sem ég er búin að græja fyrir tölvuna mína. Í aðra röndina er ég samt fegin því að ég verð alltaf svo hrikalega húkkt að það er ekki hægt að ná sambandi við mig. Ég bara elska tölvuleiki.
Kosturinn við forjaxlaleysið er sá að þegar ég er að drekka úr glasi þá get ég lagt glasið í götin og þannig hellt upp í mig án þess að sulla í sárin. Gallinn er sá að það slaknaði svo mikið á tönnunum að ég er búin að missa bitið. Ekki í fyrsta skipti.
Hóf árið í hurðinni á Sirkus. Bjó án baðkars. Baldvin fór - Gisella og H.B. fluttu til mín og Hjördísar. Byrjaði í gymminu. Stelpuhús dauðans tímabil út maí. Fékk góðar fréttir. Vann mikið. Mikið grillað. Sleit sambandi. Vann meira. Var dómari í Músíktilraunum. Fékk teina. Fór á Hróaskeldu til að vinna. Var hjá Kitty í Köben, það var gaman. Nana og Dísa giftu sig, við Heiður skemmtum okkur vel. Fór á G-Festival í Færeyjum með Einari - mjög gaman. Kom heim og fékk skrýtnar fréttir. Hætti á Sirkus. Hætti á Jöklaseli. Byrjaði aftur í skólanum. Erfiður tími. Flutti til Mörtu Sveins - gaman. Fór á Airwaves. Dæmdi Battle of the Bands. Stressið minnkaði. Próf kláruðust. Varð loksins stúdent. Átti jól með fjölskyldunni og mínum ástkæra. Hélt upp á ármót með glæsibrag út um allan bæ.
Ég er 12 kílóum léttari en við síðustu áramót en það breytir því ekki að ég ætla að taka gott hreyfingarsession fram á vor.
Ég á nýjan/gamlan kærasta sem er líka besti vinur minn - vel til fundið.
Ég er að hugsa um að byrja í HÍ en mig vantar vinnu.
Já - mig vantar meiri vinnu!