Helga Þórey í Undralandi undrast

Sjálfskipaður talsmaður neytenda gubbar út úr sér hræsni og öðrum sannleik

Undrapabbi December 21, 2006

Filed under: Fréttir — Helga Þórey @ 5:28 pm

Þessi: http://helga.undraland.com/?s=/2002/12/05/14.28.14/#2686

Annars sett ég upp húfuna í gær.

Loksins, loksins!


Hin langþráða húfa… December 15, 2006

Filed under: Fréttir — Helga Þórey @ 12:08 pm

…verður sett upp næstkomandi miðvikudag.


Ég skrifa um tónlist

Filed under: Tónlist — Helga Þórey @ 1:41 am

Ég er búin að vera að læra mikið undanfarið svo að sjálfsögðu er ég búin að lesa helvíti mikið af bloggi á meðan. Meðal annars er ég búin að vera að fylgjast með ansi áhugaverðri umræðu á bloggi Árna Matt um Íslensku tónlistarverðlaunin. Í kommentakerfi hans var aðili sem hafði margt til málanna að leggja svo að eins og ég geri oft og iðulega, gúgglaði ég hana og fann bloggið hennar. Þar kom fram forvitni hennar gagnvart tónlistarpennum og hvers vegna við værum ráðin til að gera það sem við gerum. Ég get ekki svarað fyrir aðra og ég get heldur ekki sagt afhverju hann Árni hringdi í mig á sínum tíma og bað mig um að skrifa.

Hinsvegar er eftirfarandi mikilvægt: Ég hef alltaf hlustað á tónlist og ekki bara hlustað, heldur hefur tónlist og allt henni tengt alltaf verið aðaláhugamálið mitt. Ég hef líka alltaf verið að skrifa og byrjaði að gera það opinberlega þegar ég fór að vinna fyrir Sánd haustið 2002. Þar var fyrst venjulegur penni en svo fékk ég sæti í ritstjórn og dílaði við allskonar sjitt fyrir enga peninga í nokkur misseri. Þegar ég tala um að hafa áhuga á tónlist þá er það enginn eðlilegur áhugi. Ég les bækur um tónlist, ég sörfa vefinn til að lesa um tónlist. Ég er með fjölbreyttan smekk og hata ekkert nema meðalmennsku. Þegar ég dæmi plötur hugsa ég ekkert um það hvað öðrum finnst en verandi tónlistarnörd og þ.a.l. oft á tónleikum og slíkt, þekki ég marga tónlistarmenn og vísa hiklaust frá mér diskum finnist mér tengslin vera of náin. Mér er skítsama hver gefur út diskana, ef ég heyri góðan disk frá Senu, fær hann góðan dóm. Ef ég heyri vondan disk frá einhverjum sem gefur sig út sjálfur fær hann viðeigandi dóm líka. Ég lít ekki á mig sem neitt annað en manneskju sem hefur svo óbilandi áhuga á tónlist að ég get varla umgengist fólk sem hefur það ekki. Ég er stundum gagnrýnd af fólki sem er ekki sammála mér, sérstaklega fyrir góða dóma, ég held að kollegar mínir fái frekar að heyra kvartanirnar vegna þeirra slæmu. Mér er sama hvern ég styggi með því sem ég skrifa en ég hef heldur ekki áhuga á því að vera vond við neinn, sérstaklega ekki nýliða. Það eina sem ég hef að leiðarljósi er að vera heiðarleg gagnvart sjálfri mér og þeim sem ég skrifa um.

Eflaust hefðu strákarnir gefi Ragnheiði Gröndal annan dóm en ég gerði. Kannski verri, ég veit það ekki. Það sem ég vil þó taka fram er að Ragnheiður Gröndal lenti í hörðum gagnrýnanda þegar mér var sendur diskurinn hennar. Og hvað sem minn kæri Arnar Eggert segir um samanburð á henni og Eivöru þá er ég því ekki sammála. Þær spretta bara ekki úr sömu jörð. Þannig liggur í því.


Íslensku tónlistarverðlaunin? December 7, 2006

Filed under: Tónlist — Helga Þórey @ 9:28 pm

Þetta eru tilnefningarnar:

POPP - HLJÓMPLATA ÁRSINS

Hafdís Huld - Dirty Paper Cup
Benni Hemm Hemm - Kajak
Sálin & Gospel - Lifandi í Laugardalshöll

ROKK / JAÐARTÓNLIST - HLJÓMPLATA ÁRSINS

Reykjavík! - Glacial Landscapes, Religion, Opression & Alcohol
Pétur Ben - Wine for my Weakness
Lay Low - Please Don´t Hate Me

DÆGURTÓNLIST - HLJÓMPLATA ÁRSINS

Ýmsir - Pældu í því sem pælandi er í
Bogomil Font og Flís - Bananalýðveldið
Baggalútur - Aparnir í Eden

ÝMIS TÓNLIST - HLJÓMPLATA ÁRSINS

Ghostigital - In Cod We Trust
Barði Jóhannsson - Haxan
Skúli Sverrisson - Sería

Popp, rokk & jaðar, dægurtónlist og ýmis tónlist deila með sér eftirfarandi verðlaunum:

FLYTJANDI ÁRSINS

Baggalútur
Björgvin Halldórsson
Bubbi Morthens

LAG ÁRSINS

Baggalútur og Björgvin Halldórsson - Allt fyrir mig
Lay Low - Please Don´t Hate Me
Ghostigital - Not Clean

SÖNGKONA ÁRSINS

Regína Ósk
Andrea Gylfadóttir
Lay Low

SÖNGVARI ÁRSINS

Bubbi Morthens
Friðrik Ómar
Pétur Ben

MYNDBAND ÁRSINS

Trabant - The One
Hafdís Huld - Tomoko
Ghostigital - Northern Lights

PLÖTUUMSLAG ÁRSINS

Lay Low - Please Don´t Hate Me
Ampop - Sail to the Moon
Toggi - Puppy

BJARTASTA VONIN

Elfa Rún Kristinsdóttir
Jakobínarína
Pétur Ben
___

Ég held að þetta sé árið sem að Íslensku tónlistarverðlaunin misstu gildi sitt algjörlega. Ég skil ekki hvað þessari ‘valnefnd’ gengur til. Nú ætla ég ekki að hrauna yfir þá ágætu tónlistarmenn og konur sem tilnefnd eru, ég vorkenni þeim hræðilega að vera tilnefnd á þessum skammarlega grundvelli sem útilokar fjölda góðra listamanna sem að hafa gefið út plötur á árinu. Skakkamanage, Eberg, Ragnheiður Gröndal, Jóhann Jóhannsson, Magga Stína, og hellingur af öðrum sem ég man ekki í augnablikinu.

Afhverju eru svona margir flokkar með fáum tilnefndum innan?
Afhverju eru safnplötur og tónleikaplötur ekki frekar með einn flokk?

Þetta tengist mínum smekk ekkert.
Þetta tengist aðeins því sem ég veit.
Ég er búin að hlusta á helling af íslenskri tónlist í ár og ég veit að þetta val er byggt á hræðilegu þekkingarleysi, og ég skammast mín fyrir að þessi hluti af þessum ‘bransa’ sé svona ferlega úr takti við það sem er að gerast í okkar annars frábæra tónlistarlífi.


Undrapabbi… December 4, 2006

Filed under: Almennt — Helga Þórey @ 5:53 pm

…það er verið að spama kommentakerfið mitt. nafnlausar færslur mínar…