Feed on
Posts
Comments

Archive for November, 2006

Hressó og fleira

Núorðið er ég farin að hanga aftur á Hressó eins og ég gerði oft áður þegar við Marta vorum saman í Ármúla. Hér er fínt að læra/skrifa. Borðin eru stór, nettengingin er þrusugóð og hér er ágætisnæði. Reyndar neyðist ég til þess að hlusta fullmikið á Air en hey, kona fær nú ekki allt í [...]

allir í strætó

í dag gerðist alveg sérlega merkilegur hlutur. ég var á leið úr vesturbænum í strætó sem er svosem ekki ýkja merkilegt nema fyrir þær sakir að strætó bílstjórinn lék á alls oddi við farþegana. hann heilsaði öllum sem gengu inn og spjallaði um daginn og veginn. hann spaugaði í ungum jafnt sem öldnum og [...]

Ég vona að þetta sé almennilegt frumvarp!

Innlent | mbl.is | 23.11.2006 | 16:47
Virðisaukaskattur á geisladiskum lækkaður
Ríkisstjórnin samþykkti í vikunni tillögu Árna M. Mathiesen fjármálaráðherra, að leggja til við Alþingi að virðisaukaskattur á geisladiska verði lækkaður í 7%. Mun lækkunin taka gildi þann 1. mars 2007 um leið og aðrar boðaðar breytingar taka gildi á virðisaukaskattslögunum.
Samkvæmt upplýsingum frá fjármálaráðuneyti verður virðisaukaskattur af [...]

VEIVEIVEI

Ég sit inn á bókasafni en mig langar til að standa upp og öskra. Ég er búin með ritgerðina sem ég byrjaði á í morgun og ég er heví ánægð með hana. Jibbí! Ég er búin að finna fullt af ógeðslega flottum myndum til að nota og ég get ekki beðið eftir því að ganga [...]

Mikið að gera

Næsta vika verður sú síðasta í þessu námi ef allt fer að óskum. Ég er svo hjátrúarfull að ég þori varla í húfumælingu á eftir. Það er líka alveg hrikalegt að vera í svona mörgum próflausum áföngum. Fullt af verkefnum og ekki bara uppsöfnuð. Reyndar hlakka ég til að klára ensku- og íslenskuverkefnin. Þá get [...]

ég held ég segi fátt í bili

hausverkur

nýju gleraugun mín passa ekki vel undir óggislega frábæru sennheiser heddfónana mína.
svo var strekkt hressilega á teinunum mínum í gær.
þar fyrir utan hugsa ég allt, alltof mikið.

hjá tannlækninum

ein heimsókn.
hálftími.
sextán þúsund.

let the panic begin

hann er byrjaður. djúpur seyðingur ótta og þrekleysis. skólinn er alveg að verða búinn og ég er stressuð. ég er opinberlega orðin stressuð. það er ekki eins og ég valdi ekki námsefninu, það er ekki málið. það eru þessir próflausu áfangaskrattar sem að eru að gera mig geðveika. ég vildi óska að ég hefði klárað [...]

ammæli

ég á ammæli á morgun en af því að ég er að fara að dæma hljómsveitakeppni og þarf líka að vakna ógó snemma á fimmtudaginn þá ætla ég frekar að fá mér tilefnisbjór á sirkus í kvöld. þar ætla ég að sýna gjörning að nafni: helga drekkur bjór. kannski krydda ég hann með skotkeppni eða [...]

Komdu þér að verki kona

Lærðu, lærðu, lærðu.
Lestu um það sem vekur hvorteðer áhuga þinn. Það er ekki eins og þér finnist neitt af því sem þú ert að gera vera óspennandi og leiðinlegt. Þér finnst það meira að segja vera æði!
Gógógó!!!
(mikið er skemmtileg afrísk tónlist skemmtileg)

Galdratöfrar og Jólahúsið

Ég var að lesa gamalt blogg mitt. Það er svo hressandi að gera það reglulega. Mér finnst gott að minna mig á hvernig ég hugsaði áður. Stundum les ég um veturinn sem ég bjó á Vesturgötunni – fyrst þegar ég byrjaði að blogga, stundum les ég um tímann sem við Marri leigðum saman en best [...]

gemmér

mig langar endalaust mikið í nammi. ég er ekki og hef aldrei verið mikil nammi manneskja svo að þetta er í hæsta máta undarlegt.

Helga does radio

Já krakkar mínir. Á morgun verið ég með innslag í útvarpi í fyrsta sinn. Ekki viðmælandi, heldur höfundur innslags í stórgóðum fréttaþætti á Rás 1 að nafni Laugardagsþátturinn. Hann hefst klukkan 13:00 laugardaginn 4. nóvember. Sem og aðra laugardaga. En á morgun verð ég með pistil.
Gamangaman.

Upprætum fordóma

Það vita það allir sem þekkja mig vel að ég er mikill vinur Færeyinga og finnst fátt yndislegra en að koma þangað. Það gerðist nú samt sem áður um daginn að maður var þar laminn á götum úti sökum samkynhneigðar sinnar. Það gerist á Íslandi líka en í Færeyjum eru engin lög sem samkynhneigðir geta [...]