EnnEittGimpiðSemLæturMigNotaSigStöðugtÍTrúMinniÁAðÉgSéAðDánsæsa
October 6th, 2006 by Helga Þórey
Ég er búin að gúggla sjálfa mig og alla sem ég þekki, hundrað sinnum.
Ég glápi á nýjasta æðið mitt http://www.netvibes.com – dæli inn nýjum upplýsingum og ýti á F5, stöðugt.
Ég er búin að lesa milljón greinar á Wikipedia (Black Dahlia, Gustav Klimt, slavery in america, cult television, Lee Strasberg, frönsku byltinguna, Pepsi, Yoko Ono og helling um fluxus).
Ég er búinn að horfa á Friends, Arrested development og YouTube.
Ég er byrjuð að dánlóda fullt af fleira dóti sem að ég ætla að horfa á seinna.
Ég hef lesið minningar manns sem enginn þekkti.
Ég komst að því að tölvan mín er meira en W-Vista capable.
Ég kenndi bróanum mínum að Wikipedia er nauðsyn í námi.
Ég hringdi í lækninn minn því ég finn til fötlunar minnar án hans.
Ég hlustaði á það sem Einar sagði og tók það til mín.
Ég ætla ekki að segja hvað það er – en ég þurfti að heyra það.
