Feed on
Posts
Comments

Nóatún

Ég vona að einhver frá Neytendasamtökunum lesi þetta blogg vegna þess að ég veit að verslunin Nóatún í JL-húsinu brýtur lög. Það er bannað að merkja vörur með einu verði í hillu og rukka svo fyrir annað (og hærra) við kassann. Ég keypti 2 lítra af kók. Á hátækni-skjá-verðmerki-fyrirbærinu stóð að tveir lítrar kostuðu 225 kr. Þegar ég kom á kassann, rukkaði úllingurinn mig um 239 kr. Ekki það að mig muni um 14 krónur en mig gæti farið að muna um ca. 15% hækkun á öllum vörum sem ég kaupi í þessari búð. Leiðréttið mig ef þetta er vitlaust, ég er ekki góð í prósentureikningi. OK, 14 af 225 = 28 af 450 = 56 af 900. Ok, kannski eru það ca 6% en mér er fokk sama. Þetta er ólöglegt og ég hata að búðir geri þetta. Hér í den var ég alltaf að kvarta í 10-11 í Lágmúla útaf svona löguðu og þeim fannst ég bara leiðinleg af því að ég vildi ekki borga kassaverðið og bara auglýsta verðið. Í Bónus má sér til gamans líta í frystinn af og til. Þar eru stundum verðmerktar 2-3 tegundir af frönskum (var alltaf að versla í Bónus þegar ég vann í Breiðholti og alltaf það sama svo að ég veit hvað ég er að tala um) en verðmerktu franskarnar voru ekki endilega franskarnar sem voru í frystinum.

Ég hef í mörg ár þráð að frílansa fyrir neytendasamtökin til að uppræta svona tussuskap. Það er óþolandi þegar stórfyrirtæki reyna að svindla á manni. Eitt enn, hafa fleiri en ég tekið eftir því hvernig það hefur orðið erfiðara og erfiðara að sjá á verðskjáinn á kassanum. Stundum verður maður að teygja sig yfir búðarborðið og beygla sig svo til vinstri svo að hægt sé að fylgjast með því hvort nokkuð sé verið að láta mann borga 239 krónur fyrir vöru sem kostar 225.

3 Responses to “Nóatún”

  1. on 02 Sep 2006 at 18:41 Borgar

    Eftirfarandi hef ég eftir afgreiðslumanni í litlu útibúi stærri keðju:

    Það er ergilegt að eltast við verðmerkingar á vörum inni í búð þegar verð er að hækka á kassanum tölvustýrt frá aðalstöðvum. Þetta er pirrandi því að það getur verið snúið að laga verð í kassakerfi ef þú kannt ekki á það – það verður þó að gera vegna þess að neytendalög segja að ef varan verður að seljast á því verði sem hún er merkt.

    Svo þannig er það bara. 14 kr í dag og 20 kr á morgun. Allt eru þetta peningar sem koma ekki aftur. Ég sé ekki að verslun sem er að selja þér eitthvað með hagnaði þurfi að vera að brjóta á þér lög fyrir 14 kr.

  2. on 04 Sep 2006 at 11:18 UnnurMaría

    Ég hef upp að vissu marki fulla samúð með starfsfólkinu sem þarf að díla við þetta. Ég veit af eigin reynslu að það er sjaldnast manns eigin klúður sem maður þarf að bera ábyrgð á þegar kúnninn segir, hey, þetta var verðmerkt ódýrara. Hinsvegar finnst mér verslanir eigi að bera ábyrgð á því að mæta þessu með því að þjálfa starfsfólkið nógu vel til að það kunni á kassann og kunni að breyta verði. Og ég kvarta því alltaf. Líka yfir 14 krónunum. Og Nóatún í JL-Húsinu er sérstaklega slæmt með þetta.

  3. on 29 Jul 2007 at 15:21 Bjarki

    Ég ráfaði inn á þessa blog færslu og ég gæt ekki verið meira sammála, t.d lenti ég í því í nóatúni í síðustu viku þegar ég fór til að kaupa mér morgunkorn, allt í lagi með það nema það stóð 440kr í hillunni en þegar ég koma á kassa þá var þetta allt í einnu orðið 539kr og ég verð að segja að það er aðeins of mikil munur þar á.