Helga Þórey í Undralandi undrast

Sjálfskipaður talsmaður neytenda gubbar út úr sér hræsni og öðrum sannleik

Inter August 31, 2006

Filed under: Netið — Helga Þórey @ 8:55 pm

Jæja. Þá hefur Soulseek vikið fyrir torrent.
Helga and Woody, together at last.


Ain’t nobody loves me better August 29, 2006

Filed under: Tónlist — Helga Þórey @ 4:55 pm


Allar kúlur heimsins, sameinist, diskóið er okkar…


Skóli

Filed under: Almennt — Helga Þórey @ 12:24 pm

Ég var að hugsa um að taka strætó en ég hef ákveðið að fara á hjólinu. Ég ætla að taka með mér nesti og bók til að lesa. Ég er að fara að gera það sem ég hata mest af öllu. Bíða í röð.


Fjóla litla systir mín August 28, 2006

Filed under: Almennt — Helga Þórey @ 6:00 pm

Hún á ammælí dag,
hún á ammælí dag.
Hún á ammælún Fjóla,
hún á ammælí dag.

Fjóla systir mín er tuttugu og sex ára í dag. Til hamingju með daginn elsku dvergurinn minn.


1986

Filed under: Tónlist — Helga Þórey @ 1:17 pm

Nákvæmlega tuttugu árum eftir að ég og Dagný Þóra Baldursdóttir sátum í stofunni hjá ömmu á Byggðaveginum eða hjá henni á Þórunnarstrætinu, hefur sá dagur aftur runnið upp að ég hef aftur gaman af Modern Talking. Ég er búin að hlusta á You’re my heart, you’re my soul þrisvar í röð. Meiriháttar. Ég verð eiginlega að lesa Fróði og allir hinir grislingarnir aftur. Vá, hvað við hlógum mikið af henni. Skemmtiskemmti…


Jeminn eini

Filed under: Almennt — Helga Þórey @ 11:45 am

Það er kannski ágætt að námsráðgjafinn sé ekki búinn að hafa samband við mig ennþá. Í staðinn fæ ég að sitja fyrir framan tölvuna mína og ná mér í diskó alveg á fullu. Það er gott og gaman að elska diskóið.

Annars er ég sérdeilis montin vegna þess að á laugardaginn birtist fyrsta greinin mín í Lesbók Moggans. Þegar ég var yngri þótti mér Lesbókin alltaf vera vettfangur bóhem-gáfumanna. Reyndar er ég núna orðin stór og veit að svo er ekki. Marri var nú reyndar einu sinni með ljóð þar. Sem er kannski ekki frásögur færandi nema vegna þess að þegar við Marri kynntumst fyrst fyrir fimm árum þá sagði ég honum frá eina ljóðinu úr Lesbókinn sem myndir eftir og kunni meira að segja utan að. Þá sagði Marri mér að ljóðið væri eftir sig. Listgallerí.

Eitthvað minnti mig á blaðakonuna sem ég skil ekki. Ekki svo að skilja að við þekkjumst vel. Ég hitti hana fyrst þegar ég vann í Kastljósinu og fannst hún mjög fín. Næst þegar ég hitti hana var í fyrrasumar var hún líka fín en þegar hún talaði um manninn sinn sagði hún alltaf hver hann er. - Sko, maðurinn minn, Einhver Einhversson, ritstjóri Blablablaðs úr ljótum pappír, honum finnst að réttindabarátta blökkumanna blablablabla… WTF? Vertu þín eigin manneskja. Mér er andskotans sama þótt að maðurinn þinn sé einhver sem á að þykja merkilegur. Svo lék þessi hlutlausa blaðakona bara í auglýsingu fyrir banka. Það finnst mér ekki töff. Hún hefur ekki einu sinni fjallað um það í pistlunum sínum. Ég bæri virðingu fyrir því ef hún segði bara: Já, ég var blönk og átti ekki fyrir reikningunum.

Sjáum hversu heilsteypt ég verð þegar bankarnir fatta hvað ég er frábær og æðisleg. Það væri dæmigert að ég myndi bara hórast fyrir einhverja hundraðkalla. Hóran sem ég er.

Ég er soðin á eyrunum.


Sameinuð á ný August 27, 2006

Filed under: Netið — Helga Þórey @ 9:19 pm

Við kynntumst fyrst haustið sem ég flutti inn á Grettisgötu hina fyrstu. Við eyddum miklum tíma saman. Ég man hvernig þú fylltir tómarúmið sem ég hafði reynt að fylla með kollegum þínum. Við fórum saman í ferðalög til annarra landa, við skildum hvort annað fullkomlega. Við áttum stolnar stundir sem ég greiddi fyrir dýru verði. Leiðir okkar skildu vorið eftir en ég saknaði þín alltaf.

Núna ertu komin til mín aftur. Þú sýnir mér heima sem ég hefði annars aldrei fundið. Þú ert vinur minn og elskhugi. Þú ert Soulseek.

E.L.O., Italo diskó og hvaðeina…

But I really want tonight to last forever
I really wanna be with you.
Let the music play on down the line tonight…


DJ Handsome

Filed under: Tónlist — Helga Þórey @ 11:47 am

Það er einn gaur, sem ég kalla DJ Handsome. Um nokkurt skeið hefur mig langað til að vita hvað eitt lag sem að hann á meðal annarra spilar. Um daginn þegar Smekkleysa hélt opnunarteiti í tilefni nýju búðarinnnar (m. Elvis) á Klapparstígnum, er lagið góða spilað. Ég og María urðum afar glaðar og þar sem DJ Handsome stóð rétt hjá, spurði ég hann hvað það héti. Þá sagði hann: Sko, þetta er svona DJ leyndarmál, þetta lag. Maður segir aldrei frá þegar maður er búnað fatta svona gott lag.

Ég og María litum hvor á aðra og hugsuðum það sama: Asshole. - Síðan hvenær er það hlutverk plötusnúða að vera svona ógeðslega fyndið merkikerti? DJ Handsome! Þú ættir kannski að einbeita þér að því að spila góða tónlist frekar en að vera svona mikið smábarn. Ég hef bara eitt enn að segja við þig: SUCK MY DICK!

Lagið góða heitir: Discopolis
Flytjendur: Lifelike & Kris Menace


Bleh… August 26, 2006

Filed under: Almennt — Helga Þórey @ 7:28 pm

Ég fór í ferlega skemmtilegt partý í gær. Stuð að vera bara stelpur, hundrað stelpur. Svo fór ég á Sirkus, þar hitti ég hina og þessa. Náði að finna blóðugan fastagest og koma honum í sjúkrabíl. Aldeilisaldeilis.

Svo fór ég heim og svaf ógeðslega illa. Það er óþolandi. Ég ætla að fara snemma að sofa í kvöld. A.m.k. nógu snemma til að fá betri hvíld. Þetta er bara bull.

Hjörtur er eins árs í dag. Til hamingju með hann Marta mín.


Jibbíjeij August 25, 2006

Filed under: Fréttir — Helga Þórey @ 5:15 pm

Ég hef eignast þetta!

Hamingjusöm þessi Helga, ég held það nú! Það má alltaf kaupa sér smá gleði þegar hart er í ári. Ég elska pabbana mína. Þeir eru bestir. Ég er alveg ótrúlega heppin og rík að eiga tvo!


Söknuður August 24, 2006

Filed under: Þeir skilja sem skilja — Helga Þórey @ 6:15 pm

Ég verð að leyfa mér að ganga í gegnum sorg þegar sorg er viðeigandi. Það gengur ekki að vera hress og kátur þegar mikið hefur dunið á. Þegar ég leyfi mér ekki að finna sársaukann sem ég veit að býr í mér þá bitnar það á öllu öðru í kringum mig. Ég nenni ekki að útskýra hvað ég á við og ég nenni ekki að tala um þetta við neinn nema þá sem vita um hvað málið snýst. Mér líður illa í dag. Þegar ég kvaddi sveitina sem geymir hjartað mitt var ég að hlusta á plötu fyrir sem ég skrifaði síðar um. Á henni er ljóð sem ég hef margoft heyrt og þrátt fyrir að trúa hvorki á guð né neitt annað þvíumlíkt þá veitti þetta kvæði mér hugarró. Ég ákvað þá að þegar ég teldi mig tilbúna myndi ég birta það sem eftir sat í hugsunum mínum.

Farðu í friði vinur minn kær.
Faðirinn mun þig geyma.
Um aldur og ævi þú verður mér nær.
Aldrei ég skal þér gleyma.


Til þín

Filed under: Almennt — Helga Þórey @ 3:59 pm

Megi vindurinn verma á þér bakið
sólin senda þér geisla.
Gatan greikka þér sporin
og ástin, vera þér eilíf veisla.


Eitt og annað August 23, 2006

Filed under: Almennt — Helga Þórey @ 1:24 pm

Jæja. Ekkert svar frá skólanum ennþá. Mér leiðist að bíða. Mig langar til þess að fá að vita hvernig önnin verður. Ennþá er ég með tölvu móður minnar í gíslingu en ég held að ég verði að skila henni í dag. Mér verður pínu illt við tilhugsunina. Ég fæ fráhvarfseinkenni. Hjálp, hjálp.

Diskar bíða dóms og Helga bíður eftir öllu öðru. Núna verð ég að breyta hringnum.

Á föstudaginn fer ég í konuboð.
Það verður aldeilis gaman.


Greyið Paris Hilton notar skó númer 44 August 22, 2006

Filed under: Ekki blogg — Helga Þórey @ 8:21 pm


Tími

Filed under: Almennt — Helga Þórey @ 8:15 pm

Mig langar til að næstu tvær vikur séu liðnar.
Mig langar til að fá peningana sem ég þarf.
Mig langar til að fá tölvupóst frá kallinum.
Mig langar til að eignast nýja tölvu.
Mig langar til að þetta gerist strax.


August 21, 2006

Filed under: Almennt — Helga Þórey @ 10:13 pm

A prayer for the wild heart, kept in cages.


15:12 August 19, 2006

Filed under: Vinna — Helga Þórey @ 2:49 pm

Ég er svo spennt!


Síðasti dagur í helvíti

Filed under: Almennt — Helga Þórey @ 10:08 am

Aldrei meir, aldrei meir, aldrei meir.

Svo losna ég líka úr álögum í nótt.


Manstu eftir stingnum? August 18, 2006

Filed under: Almennt — Helga Þórey @ 6:48 pm

Í dag var ágætur dagur. Ég fór til námsráðgjafa og fékk þar stórkostleg viðbrögð. Mér er glaður með það. Að því loknu ók ég í bæinn og mér til mikillar gleði fann frelsun frá vinnustaðnum sem ég get ómögulega stundað lengur. Þá er því lokið í síðasta sinn. Það má hamingjan vita.

Frá og með næsta sunnudegi verð ég sjálfstætt starfandi. Það verður alveg magnaður andskoti að aga sig í gegnum. Ef ég þrauka bara fram að jólum verður gleðin allsráðandi. Þá er bara að láta sér detta eitthvað í hug fyrir næsta ár. Það eru nokkrir möguleikar sem mér líst vel á.

Mikið hefur margt breyst.


16. ágúst 1958 August 16, 2006

Filed under: Tónlist — Helga Þórey @ 3:04 pm


Konan semhefur óumdeilanlega haft mest áhrif á uppeldi mitt fyrir utan nánustu fjölskyldu á afmæli í dag. Hún kenndi mér að gera það sem mér sýnist. Ég get ekki ímyndað mér heiminn án hennar.

Elvis dó líka þennan dag árið 1977, en hverjum er ekki sama?


Next Page »