Helga Þórey í Undralandi undrast

Sjálfskipaður talsmaður neytenda gubbar út úr sér hræsni og öðrum sannleik

Mannakúkur June 30, 2006

Filed under: Almennt — Helga Þórey @ 2:49 pm

Vinur hennar Perlu sagði: Sjáðu, það er mannaskítur á skónum mínum!

Við skildum ekki afhverju hann henti ekki skónum. Okkur langaði líka til að æla.
- Oj, hvað það er ógeðslegt að vera með kúk á skónum sínum.


Gamalmenni June 29, 2006

Filed under: Almennt — Helga Þórey @ 12:03 pm

Mér finnst ég vera eins og gamalmenni. Og í morgun gat ég alls ekki vaknað. Hvernig varð ég svona? Einu sinni var ég morgunhressa týpan og núna er ég bara gimp. Kannski vegna þess að veðrið er hvorki of né van. Það er besta veðrið.

Best að hitta Önnu.

P.S. Ég hitti Eivöru í gær. Mikið var það gott :)

Þessir dagar snúast mikið um gamla og nýja vini.


I love the way the world looks from a bicycle June 27, 2006

Filed under: Almennt — Helga Þórey @ 4:27 pm

Ég hjólaði á marga staði.
Ég fékk glæsilegt fréttaritaraskírteini.
Ég tók passamyndir.
Ég er búin að tapa tíma.
Ég verð að sofa eitthvað.
Ég hlakka til.
Ég kvíði því sem ég get ekki stjórnað.
Ég fór í bankann.
Ég fór í annan banka.
Ég skrifaði tölvupósta.
Ég stækkaði launatékkann minn.
Ég er slöpp.
Ég get ekki gert allt sem ég þarf að gera.
Ég vil nýja myndavél.
Ég verð að redda mér sniðugum skóm.
Ég er ekki að meika þessa dóma.
Ég skoða veðurkort.
Ég hjóla meira.
Ég hlusta á tónlist.
Ég fer í margar lyftur.
Ég tala í símann.
Ég þarf að fá að komast í gymmið.
Ég hugsa um blóð.
Ég þarf að vakna snemma.
Ég get ekki svarað öllum sem hringja.
Ég þarf að tala við pabba.
Ég veit ekki hvað ég á að gera næst.
Ég er föst.
Ég tala á msn.
Ég veit um það sem mig vantar.
Ég þarf að kaupa flug til Færeyja.
Ég ætla að hjóla meira.
Ég ætla að hlusta á tónlist.
Ég ætla að hugsa um ekkert.
Ég ætla að vera.
Ég er vera.

I always wished that I could find, someone as beautiful as you.
But in the process I forgot, that I was special too.


Um eitthvað allt annað June 26, 2006

Filed under: Almennt — Helga Þórey @ 5:02 pm

Jæja. Þá er allt komið í farveg og það eina sem ég þarf að gera er að renna mér eftir honum. Til allrar hamingju hefur eftirlætis yfirmaður minn stækkað verkefnið mitt svo að ég fæ meira af peningum. Svo ætla ég líka að skrifa smá pís um skemmtilega tónleika í 12 tónum.

I just love that smiling face in the early sun…
…I’m gonna stick my love in your eye, baby.

Var ég búin að tala um það áður hvað ég eeeeelska tónlist mikið. Já, ég elska tónlist. Lagið á prófílnum á mæspeisinu mínu er gamalt uppáhald sem ég er búin að vera að enduruppgötva. Sérstaklega í ljósi þess að ég og konungur fönksins verðum í næsta nágrenni við hvort annað áður en langt um líður. Það verður frábært!


Vinnivinnivinnivinn

Filed under: Vinna — Helga Þórey @ 3:19 pm

Bannað að stressast.
Bannað.
Bannað.

Á morgun fæ ég skírteini og á morgun þarf ég að vera búin að öllu í heiminum.


Tæknismækni June 25, 2006

Filed under: Ekki blogg — Helga Þórey @ 7:23 pm

Þetta er búin að vera áhugaverð helgi. Ég fór röngu megin fram úr rúminu í gær en það var allt í lagi. Svo fór ég að vinna og að því loknu fór ég í konuboð til mömmu. Þar var ægilega gaman. Ég var orðin alveg ágæt þegar ég kom heim um ellefuleytið og kaus því að bíða í hengirúminu eftir Einari sem fór síðan með mér á barinn. Þar komst ég að afar merkilegum hlut: Baldur og Palli geta opnað brjóstahaldara í gegnum bol, með annarri hendi! Það er ógeðslega töff. Mjög veraldarvant. Sumir karlmenn eiga nefninlega í mestu vandræðum með brjóstahaldara og eru eiginlega bara hræddir við þá. Svona eins og Chandler. Þá eru B. og P. meira eins og Joey.

Djöfull er þessi vinna helluð. Ég er afar glöð að vera með manninn í kvöld. Ójá, hún er best.


Eitt verð ég að segja þér… June 24, 2006

Filed under: Þeir skilja sem skilja — Helga Þórey @ 2:47 pm

…ég vil ekki vera steinninn í skónum þínum.


Ég er leiður June 23, 2006

Filed under: Almennt — Helga Þórey @ 8:08 pm

Það var strákur í árgangnum mínum fyrir norðan. Ég man eftir honum hlaupandi á leikvellinum fyrir utan B.Ó. með skott í ljósu hári. Hann var skemmtilegur og aldrei vondur við neinn. Við vorum á sama leikskóla, saman í bekk í sex ár og hann var líka skyldur mér. Það eru nokkur á liðin síðan ég sá hann. Ég hef alltaf þekkt hann og núna er hann dáinn.

Þetta er ekki sanngjarnt, þetta er ekki sanngjarnt…


Heyrðunúmig! June 22, 2006

Filed under: Ekki blogg — Helga Þórey @ 8:34 pm

Hún Heiður er alltaf að segja mér að fá mér svona. Ég er búin að tala um það við hana að hún eigi ekki að vera að þröngva sínum krankleika upp á mig í tíma og ótíma. Þessi klámsýki hennar er orðin frekar sikk, ef ég á að vera alveg hreinskilin. Svo er þetta ekki einu sinni klám, þetta er bara eitthvað annað, jæja, kannski er hún bara í síðhvörfum eftir atvikið með hann Pál Óskar. Það getur nú alveg farið með fólk að týna páfagauknum sínum á afmælisdaginn sinn.


Gamall vinur

Filed under: Almennt — Helga Þórey @ 6:54 pm

Þar sem ég brunaði eftir Öldugötunni á mánudaginn, sá ég kunnuglegt andlit. Það var hún Monsa Heiðar- og Hjördísardóttir. Mikið þótti mér gaman að hitta hana aftur. Hún labbaði til mín og mjálmaði sínu hljóðlausa mjálmi, svo stökk hún upp á grindverk og hélt áfram leiðar sinnar. Merkilegt hvað það gladdi mig að sjá hana. Hún er seigur andskoti þessi kisa. Ég man þegar hún læstist inni í kjallarageymslu í svo marga daga að stelpurnar voru búnar að missa alla von þegar hún fannst. Það þurfti að raka af henni dreddana eftir ævintýrið. Ógeðslega fyndið að sjá norskan skógarkött rakaðan frá maga og niður. Ég fer bara að hlæja við tilhugsunina.


Brýr eru ógnvekjandi

Filed under: Almennt — Helga Þórey @ 4:38 pm

Þegar ég var búin að vinna í Breiðholtinu í gær, kom vinur minn með með hjólið sitt og saman hjóluðum við Reykjavík næstum því á enda. Það er gaman að hjóla. Gaman að vera aftur komin með hjól. Ég verð að eignast almennilegt hjól sjálf. Það er líka svo fínt að búa svona austarlega í miðbænum því þá er miklu skemmtilegra að hjóla upp á Rúv eða Mogga heldur en að taka strætó. Sem er reyndar líka fínt, að undanskildu morðæði þeirra sem keyra stofnleiðirnar. En bráðum þarf ég ekki að hugsa um stofnleiðirnar. Ég veit ekki hvað ég á að taka mér fyrir hendur næst. Kannski laga til í herberginu mínu… hmm… Eníveis, þá var ég búin að gleyma því hvað ég er hrædd við að fara yfir göngubrýr. Sérstaklega á stórum umferðargötum. Þessi sem fer yfir Hafnarfjarðarveginn í Fossvoginum er ógeð. Það brakar í henni og skyndilega kemur asnaleg beygja, sem er hræðilegt þegar handriðið er einn meter á hæð. Halló, það er mögulegt að detta á hjóli. Ég kýs frekar að detta á jörðina heldur en að hrapa 10 metra niður á ljósalausa umferðargötu með meðalhraðanum 90 km/klst. Ég hlýt að vera kröfuhart óbermi.


Endurfundir June 21, 2006

Filed under: Almennt — Helga Þórey @ 8:24 pm

Það gerðist í nótt. Ég svaf í mjúkum örmum sem ég hafði ekki haft hjá mér lengi. Kunnugleg spenna og sömu undarlegu hljóðin sem ég hafði saknað svo sárt. Í morgun tímdi ég ekki að fara á fætur heldur lá hamingjusöm undir sænginni og vissi að í þetta skipti yrðum við lengi saman. Já, ég er búin að fá rúmið mitt aftur. Jibbí!


Gleðifréttir!

Filed under: Vinna — Helga Þórey @ 4:43 pm

Ég er búin að segja upp í Breiðholti!


Jibbí!

Filed under: Vinna — Helga Þórey @ 11:57 am

Ég verð svo hissa þegar ég fæ það sem ég vil.
Fæ það sem ég vil.
Fæ það sem ég vil.

Liggaliggaliggalá.


Kvinnur

Filed under: Almennt — Helga Þórey @ 11:13 am

Af hverju heldur sumt fólk að feminismi sé neikvætt hugtak? Mér finnst fólk stöðugt neita að kalla sig feminista í ótta við það að það sé eitthvað slæmt. Feministar hata ekki karla, feministar vilja jafnrétti kynjana. Hver vill ekki jafnrétti?

Andleysi mitt er fullkomið.


Ýmislegt June 20, 2006

Filed under: Almennt — Helga Þórey @ 6:34 pm

Ég átti frábært samtal á msn í dag, það var stútfullt af misskilningi og kaldhæðni sem ekki náði í gegn. Það er eins og ekkert hafist úr því að þekkja sumt fólk þegar msn er annars vegar. Ég hef reyndar gert þetta margoft en núna hef ég miklu meiri húmor fyrir því. Svo leysist þetta nú alltaf, ég hef heldur ekki sérlega gaman af því að fólk sé að rífast við mig af tilefnislausu. Hvað þá að það haldi að ég sé að rífast þegar ég er bara að djóka. Sem ég geri stöðugt við misgóðar undirtektir.

Það er nú gaman að segja frá því að mér hefur tekist að véla sakleysing nokkurn í hurðina á Sirkus. Ég hef nú ekki miklar áhyggjur af henni því hún er mikill töffari sem kann að vera kurteis. Sem er afar gott. Svo þarf ég að kaupa mér flugmiða. Meira að segja tvo. Því til útlanda skal haldið og það verður mikil endurfundagleði. Eins og alltaf þegar ég heimsæki órómantískustu rómantísku borgina.

Ég er búin að sitja og bögglast við að skrifa dóm í marga klukkutíma. Merkilegt hvað þetta er misjafnt. Stundum skrifa ég tvo á klukkutíma, við önnur tækifæri sit ég heila eilífð. En ég kvarta ekki. Það er gott að vinna sjálfstætt, já.

Ég er búin að setja inn nýjar myndir á mæspeisið mitt. Mér þótti afar mikilvægt að Fjördís sæi hvernig ég hef tekið við hrakfallabálksskap hennar. Ég stakk upp á því við marblettaglaðan vin minn að við færum saman í sund og sýndum marblettina okkar. Við gætum síðan þóst fara að slást og gert úr því heilmikið skemmtiatriði. En hann er haugur og nennir aldrei með mér í sund. Best að fara í sund. Namm, sund.


Eins og áður June 19, 2006

Filed under: Almennt — Helga Þórey @ 8:52 pm

Margt í mínu lífi er nú eins og áður. Ég er til dæmis búin að taka hjólið hennar Helgu B. traustataki og hjóla nú út um allar trissur eins og ég gerði mikið. Í gær hjólaði ég úr miðbænum, upp í Rúv og svo í Vesturbæinn. Það eru örugglega fimm kílómetrar. Þegar ég fer í gymmið nenni ég aldrei að hjóla, mér finnst miklu skemmtilegra að fara á gönguskíðatækið (eða hvað sem þetta heitir) og keyra mig út á því. Lyfta er líka skemmtilegt, ég hef óstjórnlegan áhuga á eigin lærum og rassi. Vinur minn sagði mér í um daginn að ég væri stórkostlegur egóisti og ætti að eyða dágóðri stund með öðrum egóista vini hans. Ég held að hann vilji ala okkur upp. Honum verður ekki kápan úr því klæðinu, helvískum.

En eins og áður sagði er ég hjólari á ný. Sumarið 2001 fékk ég hjólaæði mikið og ég hjólaði svo grimmt að þegar yfir lauk var ég búin að hjóla til Þingvalla og hringinn í kringum Mývatn. Mjög gaman. Manstu Ragga?

Og núna er ég að bilast, mig langar að hjóla út um alla Öskjuhlíð og fara svo í keilu. Mig langar að skreppa til framandi staða eins og til Akureyrar og hjóla um Kjarnaskóg og hlæja að FM-hnökkum. Ég vil finna sára vöðva herpast í Bankastrætinu og renna mér niður Hringbrautina.

Svona í tilefni þess að ég er ofvirk með athyglisbrest þá ákvað ég að birta ljóð sem ég las fyrst þegar ég var tíu ára. Það kemur þessari færslu ekkert við og ég var bara minnt á það vegna þess að hugsanir mína rása mikið. En þetta ljóð hefur alltaf verið mér minnisstætt og nú er ber þessi nostalgíska færsla nafn með rentu.

Never give all the heart, for love
Will hardly seem worth thinking of
To passionate women if it seem
Certain, and they never dream
That it fades out from kiss to kiss;
For everything that’s lovely is
But a brief, dreamy, kind delight.
O never give the heart outright,
For they, for all smooth lips can say,
Have given their hearts up to the play.
And who could play it well enough
If deaf and dumb and blind with love?
He that made this knows all the cost,
For he gave all his heart and lost.


Hjólað í vinnuna June 18, 2006

Filed under: Ekki blogg — Helga Þórey @ 4:46 pm

Það er að líða yfir mig.


Samtal við þig June 16, 2006

Filed under: Almennt — Helga Þórey @ 5:14 pm

Ég átti samtal um samtal sem fjalla um samtöl. Það besta er að samtalið varð til vegna þess að annað samtal varð til og um það var átt samtal sem þurfti enn eitt samtal.

Einu sinni tók ég viðtal við tónlistarmann sem er skemmtilega klár náungi. Hann sagði mér hvað honum fyndist asnalegt að fólk væri alltaf að eiga samtöl í símann um að tala saman seinna. Samtal um að eiga næsta samtal.

Það er alveg rétt hjá honum. En stundum er nauðsynlegt að eiga svona samtöl. Þá verða öll næstu samtöl miklu skemmtilegri. Enda hafa samtöl dagsins verið einstaklega skemmtileg. Einkum og sér í lagi þar sem ég átti fyrrgreint samtal.


Fallegasti maður í heimi June 15, 2006

Filed under: Tónlist — Helga Þórey @ 4:58 pm


Next Page »