Sækóstrætó
May 23rd, 2006 by Helga Þórey
Sko, eins mikið og ég elska strætó um þessar mundir þá er nú alveg hægt að ofbjóða manni. Í fyrsta lagi keyrði Fjarkinn bara framhjá mér eins og ekkert væri þegar ég beið eftir honum á Hverfisgötunni. Ég tölti upp á Hlemm til þess að bíða eftir Þristinum og viti menn, þar voru rónar að týna pillur af stéttinni. Fyrir framan níu ára reykjandi strák! Svo kom annað rónakrú og settist inn og fór að röfla hátt um pólitík, kræst. Þegar í Þristinn kom fékk ég nú aldeilis fyrir ferðina. Bílstjórinn keyrði á 60 niður Hverfisgötuna og nauðhemlaði reglulega. Ég gat aldrei lagt frá mér töskuna sökum þess hve hratt hann fór í beygjurnar. Og þegar ég ætlaði að standa upp til þess að yfirgefa vagninn datt ég næstum því á gamlan mann vegna þess að bílstjóra vorum þótti betra að negla niður.
Hvað ef ég hefði verið gamalmenni eða með barnavagn eða í hjólastól eða á hækjum eða blind eða kasólétt?
