Feed on
Posts
Comments

Archive for May, 2006

Einar heima

Allt í einu datt allt í dúnalogn og lessurnar fluttu til úgglanda. Ég grét smá yfir þegar þær fóru en ég veit að það verður gaman hjá þeim. Bráðum kemur nýtt tímabil í húsinu okkar. En í dag eru Helgurnar einar…
Snöktisnökt…

(eitthvað rætið)

Mér skilst að ég hafi misst af einhverju á laugardaginn.

Já, það er ekki um að villast ég verð að vinna á Hróa. Og G! Festival. Gaman.
Mér leiðist heldur ekki.
Bara alls ekki.
Ég er til í meira.

Kjördagur

Að kjósa er góð skemmtun. Við fylgjum áætluðum hugsjónum okkar og skundum á kjörstað. Eftir að hafa kosið dettum við í það og gleymum að fylgjast með sjónvarpinu. Fréttamenn gera það hinsvegar ekki, þeir sitja negldir og fylgjast með. Enda geta þeir síðar sagt hluti eins og Já, það munaði nú litlu að hann Gunnar [...]

Reggípabbi R.I.P.

Hinn stórgóði tónlistarmaður Desmond Dekker er látinn. Hann var sannarlega brautryðjandi. Takk fyrir að kynna mig fyrir honum, Jonni.

I’m a bouncer

Það er alltaf eitthvað fólk sem ég þekki ekki neitt og hef aldrei séð áður á Sirkus að biðja mig um að hleypa gommu af vinum sínum framfyrir röð þegar mínir eigin vinir eru bíðandi fyrir utan. Að hóta mér virkar ekki.

Mér…

…leiðist og leiðist og leiðist og leiðist og leiðist og leiðist og leiðist og leiðist og leiðist og…
Hei, hver vill detta í það með mér í kvöld?

LRL

Hahaha! Ég var að djöflast í Manninum. Ég kitlaði hana óspart á meðan hún varði sig með höndunum og þá datt ég á puttana á henni og meiddi mig í vörinni. Ég hef sjaldan séð hana hlæja jafn dátt. Hún hélt um magann flissandi, ýtti mér í burtu og læsti mig úti. Ég elska hana. [...]

Sækóstrætó

Sko, eins mikið og ég elska strætó um þessar mundir þá er nú alveg hægt að ofbjóða manni. Í fyrsta lagi keyrði Fjarkinn bara framhjá mér eins og ekkert væri þegar ég beið eftir honum á Hverfisgötunni. Ég tölti upp á Hlemm til þess að bíða eftir Þristinum og viti menn, þar voru rónar að [...]

Venjulegt

Venjulegir vinir á venjulegum degi borða venjulegan mat á venjulegan hátt. Þeir hlusta á venjulega tónlist úr venjulegu útvarpi inni í venjulegu húsi við venjulega götu. Venjulegar venjur venjast, venjulega.

Sjónvarp

Oh! Það er hundleiðinlegt að horfa á Ósí þegar maður veit hverjum verður lógað í lokin…

Vinnivinnivinni

Ég fékk ægilega skemmtilegar vinnufréttir áðan. Það er gaman að fá nóg að gera í uppáhaldsvinnunni sinni. Að hlusta á tónlist og fá svo að skrifa um hana er snilld þegar maður er ég.
Undrapabbi! Við þurfum að tala saman. Ég get ekki addað nýjum notendum. Mig vantar líka hjálp við að skoða flokkana eina [...]

Blow your headphones

Ég var að kaupa mér þessa heddfóna og ég elska þá. Þeir eru bestir í heimi og einmitt það sem mig og Æpodd kærastann minn vantaði!

Hei

Það vantar dyravörð á Sirkus. Strax.

Ég er auli

Mér þykir það leitt og mér finnst það asnalegt… en ég hef ekki ennþá sett inn hlekk á kæra vinkonu mína.
Hún heitir Katrín og hún er frábær.
Ást og kossar, má ég kynna…
KATRÍN!

Æpodd er heimsins besti kærasti pt. 2

Ég ætla að labba í strætó, hlusta á Africa með Toto og reyna að gleyma þessum hræðilega fréttatíma.

It’s gonna take a lot to drag me away from you
Theres nothing that a hundred men or more could ever do
I bless the rains down in africa
Gonna take some time to do the things we never had

Bjartsýni

Það lítur út fyrir að ég fái uppfyllingu óska minna og komist á
HUMAR SUMAR!!!

Tapað – fundið

Tom Yum núðlusúpur frá Blue Dragon.
Súpur þessar fengust áður í Hagkaup, Nóatúni
og víðar. Þær vour í bleikum pökkum en nú lítur
út fyrir að hið bragðvonda Beef flavor sé búið
að yfirtaka þennan lit. Ef einhver á svona súpur
er sá hinn sami vinsamlegast beðinn um að selja
mér þær. Þetta eru bestu núðusúpur í heimi og
ekki bragðlaus vibbi [...]

Ljóð um leiða

Leiði, leiði,
leiði, leiði.
Viltu skemmta mér?
Því ég er að drepast,
því ég er að drepast.
Leiði, leiði,
leiði, leiði.
Ekki kála mér.

Blender er áhald

Ég var að lesa afar skemmtilega grein á blender.com sem heitir The 50 Worst Things Ever to Happen to Music. Ég sprakk úr hlátri þegar ég las nr. 38. Tékkitt.

Next »