Vinnugleði
April 22nd, 2006 by Helga Þórey
Eftir kaldan vetur og skýjaða tilvist mætti ég til vinnu og fann hvernig gleðin, blærinn og andinn höfðu tekið sér bólfestu í hjarta mínu á ný. Ítalskt diskó dundi í eyrunum þar sem ég opnaði hurðina í þúsundasta sinn. Álfalegu augun, sem ná mér alltaf fyrst, blöstu við mér. Svo er það gleðin, gestrisnin og helvítis fylleríið. Já, það eru Færeyingar í bænum.
