Feed on
Posts
Comments

Archive for April, 2006

Leiðir okkar lágu saman í nóvember í fyrra og um leið og ég byrjaði að stunda leikfimi urðum við bestu vinir. Hann gefur mér endalaust og fyrir það er ég afar þakklát. Það er eitt sem ergir mig þó við hann. Lélegir heddfónar. En ég fann stórkostlega lausn. Þegar ég skipti og set R í [...]

Sniðugt verkefni

Ég vona að það gangi upp, ég vona að það gangi upp.

Blöðrubólga

Heimsins besta getnaðarvörn.

(‘)

Það snjóar og snjóar og snjóar og snjóar. Mér leiddist svo mikið í vinnunni áðan að ég fræddist. Ég las allt sem ég komst yfir um Frank Zappa. Mér datt í hug að fara að safna honum en svo gerði ég mér grein fyrir að hann er með stærstu diskógrafíu í heimi. Þannig að ég [...]

Vinnugleði

Eftir kaldan vetur og skýjaða tilvist mætti ég til vinnu og fann hvernig gleðin, blærinn og andinn höfðu tekið sér bólfestu í hjarta mínu á ný. Ítalskt diskó dundi í eyrunum þar sem ég opnaði hurðina í þúsundasta sinn. Álfalegu augun, sem ná mér alltaf fyrst, blöstu við mér. Svo er það gleðin, gestrisnin og [...]

Föstudagur til fjár

Þetta gengur vel. Mér er ekkert sérlega illt í munninum og allt er að falla í skorður. Að vera með teina er ekki nærri því jafn slæmt og ég hafði ímyndað mér. Ég á reyndar erfitt með að borða en það er alltílæ. Þá bara dettur smá fituskán af rassgatinu á mér. Núna á ég [...]

Hnegg

Full af járni.

Meiriháttar!

Það er svo gaman að það sé páskadagur í eitt af þessum örfáu skiptum sem mér finnst gott að borða súkkulaði.

Dagskrá

Í gær voru þrjár skemmtilegar myndir í sjónvarpinu. Ég sem hef alltaf litið á leiðinlegt sjónvarpsefni um páska sem aðalsmerki Rúv. Í kvöld verður líka skemmtibíó og á Skjá einum eru byrjaðir Woody Allen sunnudagar!
Þegar ég loksins hætti að tala um tennurnar í mér, mætti halda að ég hefði breytt nafninu mínu í Sjónvarpshandbókin.

Hnjé…

Það er ekki eðlilegt hvað mér leiðist ÓGEÐSLEGA MIKIÐ Í VINNUNNI!

Nú er hún hafin, árstíðin sem kallar til ungmenna og kennir þeim að elska peninga. Ég kýs að kalla fermingar og þartilgerðar veislur Krýningarhátíð kaptítalismans. Lítil börn með stórar áhyggjur eins og bólur og hljómsveitanöfn – alkóhólisma foreldra og einelti, krjúpa nú á kné fyrir því íþyngjandi bákni sem þjóðkirkjan er. Tilbúin í tilbeiðslustellingum, í [...]

Jæja þá

Þær góðu fréttir bárust mér í gær að ég fæ teinana 18. apríl í staðinn fyrir 18. maí. Þannig að ég fer í teygjur á morgun. Aftur. Búast má við almennri skapgleði þessa viku sem ég verð í eymd og ógeði. Reyndar fór ég aftur til tannlæknis í gær. Hann settir bragðversta ógeð í heimi [...]

Sumt fólk er alltaf í vörn

Flestir sem hafa náð fullorðinsaldri gera sér grein fyrir því að framkoma fólks er allskonar. Ég var reyndar orðin nokkuð stálpuð ung kona þegar ég áttaði mig á því að allir geta hagað sér eins og fífl. Það er enginn töfraaldur sem lætur fólk lagast. Það er heldur ekki nein menntun eða staða sem hjálpar. [...]

Hamingjusöm á ný

Loksins er venjulegur dagur runninn upp! Ég fór í leikfimi og er í vinnunni. Jibbí. Mér er ennþá ógeðslega illt í tannholdinu en það er ekkert miðað við um helgina. Íbúkód er besta lyf í heimi! Á morgun fer ég í tæki. Það verður spes. Jájá.

Það er mánudagur í lítð hefur breyst í uppsprettu þjáninga minna. Mér er ennþá svo illt í munninum að mig langar að kasta mér í gólfið á klukkutíma fresti og grenja. Ég get ekki borðað venjulegan mat. Mig svíður í tannholdið, allan hringinn og það eina sem ég get treyst á að breytist er að [...]