Feed on
Posts
Comments

Leiðindi

Ég sagðist geta farið í vinnuna en nú er ég ekki viss. Sterarnir er farnir og ég er hrædd um að ég fari bara að bólgna og bólgna í framan. Svo finnst mér ekki gott að tala, það er eiginlega bara vont að opna munninn. Það sem reddar mér er myspace og internet almennt. Ég er samt að hugsa um að fara í gymmið. Ég held að mér líði betur ef ég læt blóðið renna.

Annars skil ég ekki af hverju fólk er með mæspeis fordóma. Mæspesið mitt gerir mér kleyft að vera í sambandi við vini mína í útlöndum og fylgjast með þeim án þess að þurfa að vera sískrifandi ímeil. Um daginn sagði ungur maður við mig að honum þætti hallærislegt að blogga á mæspeisið á ensku. Hann á greinilega enga úgglenska vini. Þeir sem tala íslensku geta skoðaða þetta blogg, mæspeisbloggið er fyrir hina. Sem tala ekki íslensku. Hvað er svona erfitt. Ja, maður spyr sig.

Annars hef ég ekkert að segja nema nöldur. Ég er fangi munnsins míns og ég verð að fara út.

Comments are closed.