Ég sagðist geta farið í vinnuna en nú er ég ekki viss. Sterarnir er farnir og ég er hrædd um að ég fari bara að bólgna og bólgna í framan. Svo finnst mér ekki gott að tala, það er eiginlega bara vont að opna munninn. Það sem reddar mér er myspace og internet almennt. Ég [...]
Archive for March, 2006
Síðasta vika var ákaflega skemmtileg. Á hverju kvöldi mætti ég á Músíktilraunir og hírðist inni í herbergi með nokkrum paunksjúklingum og þrasaði um hvað væri best. Mikið eigum við von á góðri tónlist á næstu árum ef ormarnir halda áfram að spila. Gamangaman.
Svona í tilefni þess að endajaxlarnir mínir voru rifinir úr mér í [...]
Ái
Posted in Tennur on March 28th, 2006 1 Comment »
Mér er svo illt í munninum að ég er að deyja. Í glasi í töskunni minni eru jaxlarnir tveir sem bera ábyrgð á eymdinni og þykir mér nokkuð ljóst að ég verð föst innanhúss um nokkurt skeið. Parkódín forte eru ekki sterkar verkjatöflur.
Ógisslega fyndið
Posted in Netið on March 27th, 2006 1 Comment »
Fyndnast í heimi. Eitthvað fyrir Saló, held ég…
God is a DJ
Posted in Almennt on March 22nd, 2006 Comments Off
Ég hef sjaldan upplifað jafnmikla skrifleti og hrjáir mig núna. Líklega vegna þess að allt sem ég hugsa er óprenthæft. En svo eru aðrar fréttir. Til dæmis það að akkúrat núna sit ég heima og bíð eftir að lásasmiðurinn hringi og skipti um hún á útidyrahurðinni. Ég ætlaði nú bara að sjá um þetta sjálf. [...]
Ekki dauð…
Posted in Almennt on March 18th, 2006 Comments Off
En ég fór ekki í neina endajaxlatöku í gær og er hundfúl yfir því. Enda er ég masókisti af guðs náð og krefst þess að vera pínd í munni mínum þegar slíkt hefur verið skipulagt.
Annars hlakka ég mikið til að dæma Músíktilraunir í næstu viku ásamt fleirum. Ég verð fimm kvöld í röð að hlusta [...]
Black sand is in my mind
Posted in Tónlist on March 10th, 2006 2 Comments »
Á meðan ég reyni að komast í gegnum eitt erfiðasta verkefni ferils míns sem tónlistargagnrýnandi horfi ég á nýju vírusvörnina taka tölvuna mína í gegn. Ég þarf að strauja hana, þá liði henni betur. Þetta er óskipulagt kaos. Allt sem Monican í mér kann ekki að kljást við.
Nýjasta nýtt í tannviðgerðum Helgu Þóreyjar
Posted in Tennur on March 8th, 2006 3 Comments »
Ég er alltaf hjá tannlækninum. Bæði er ég að borga fyrir gamlar syndir en einnig er ég að borga með rassgatinu á mér fyrir þjónustu þessa. Ég er löngu komin yfir hundrað þúsund frá því að raunir mínar hófust þann 20. janúar síðastliðinn. Í gær sagði Daði (tannsi) mér að hann gæti ekki tekið endajaxlana [...]
Kóldpleidiss
Posted in Ekki blogg on March 8th, 2006 2 Comments »
Hnegg
http://www.mbl.is/mm/folk/frett.html?nid=1189381
Uppskera
Posted in Almennt on March 2nd, 2006 2 Comments »
Það er nú gaman að segja frá að þessi vika hefur verið sannkölluð uppskerutíð. Allar launalausu næturnar á Sándskrifstofunni eru að borga sig. Ég ætla að horfa á rjómann af íslenskum bílskúrsböndum bráðlega og tjá mig um efni þeirra og gæði, ásamt því að ég fæ meira að skrifa hjá Mogganum. Sem hentar mér stórkostlega. [...]
