Heima hjá mér
February 16th, 2006 by Helga Þórey
Ég bý í skemmtilegasta húsi í heimi. Í gær var haldinn húsfundur við mikla viðhöfn og þar slátrað dágóðu magni af rauðvíni og hvítvíni. Áður en kvöldið var liðið höfðum við endurhannað bókakápu, komist að niðurstöðu um húsnæðismál og brotið glas. Við komumst líka að þeirri niðurstöðu að við þyrftum aldrei aftur að fara á djammið því að það er svo gaman heima hjá okkur. Gleraugun mín eru með gylltum doppum og hendurnar mínar eru svartar af lakkspreyi. Það er gaman að vera til. Svo keypti ég mér svartar thai-buxur þannig að núna eru lærin mín dökkgrá, afar smart. Ég hugsa að ég verði að skola úr þeim…
Kisó er flutt heim, Zeldu til mikillar gremju. Zelda glápir ofan úr hásætisbúrinu sínu á hverja hreyfingu Kisóar, ég held að hún sé hrædd við hana. Annars held ég að Kisó sé ekki búin að fatta að hún býr með eðlu. Hún vappar bara um húsið og skoðar hvern krók og kima. Já, það er gaman að vera köttur í svona stóru húsi. Mjá.
P.S. Kóldpley er hætt. Jaahúúú!!!
One Response to “Heima hjá mér”

Neibb…þeir eru ekkert hættir, tékkaðu á heimasíðunni þeirra