Feed on
Posts
Comments

Archive for February, 2006

Jahú

Meiri vinna.

Í vinnunni

Ég horfist í augu við enn einn sunnudaginn. Ég kann ekki að vera Helga nokkra daga. Ég ætla að fara í verkfall.

Baugur

Mér finnst Baugsmálið hallærislegt. Ríkið er búið að eyða meira af peningum í að reka málið en fengjust ef málið ynnist. Sem er ekki líklegt. Er það nokkuð?

Umboðið mitt

Jæja. Fjandans. Kóldpley eru ekki hættir, en ætla samt í pásu. Vei. Ég vildi óska að U2 færu í pásu. Mér leiðast þeir.
Ég var búin að hlakka til í allan dag. Í gær gaf Siggi mér skriflegt umboð til þess að sækja PappaSigga í Skífuna í Kringlunni. Umboðið er afar glæsilegt, skrautskrifað og með [...]

Heima hjá mér

Ég bý í skemmtilegasta húsi í heimi. Í gær var haldinn húsfundur við mikla viðhöfn og þar slátrað dágóðu magni af rauðvíni og hvítvíni. Áður en kvöldið var liðið höfðum við endurhannað bókakápu, komist að niðurstöðu um húsnæðismál og brotið glas. Við komumst líka að þeirri niðurstöðu að við þyrftum aldrei aftur að fara á [...]

Frekjudós

Ég hata að fá ekki það sem ég vil. Kannski er það frekja – ég kýs að kalla það ástríðu. Reyndar hef ég alltaf verið alveg hrikalega frek. Mig langar líka oft meira í eitthvað sem ég get ekki fengið. Jæja, best að fara í skólann.

Auglýsing

Íbúð óskast. 2-3 svefnherbergi + góð stofa. 101 skilyrði. Strax. Við nennum ekki að búa í þessu bilaða húsi lengur.

Ég hef ekkert að segja

Nema að mig langar í José Gonzales.

…halla á eftir mér og fer

Þegar einar dyr lokast opnast gluggi. Það las ég að minnsta kosti einhversstaðar. Dagurinn byrjaði vel, ég vaknaði drulluþunn eftir kveðjupartý Sunnevu. Ég man að ég var svo full þegar við Asako komum heim að ég hugsaði: Hvernig komst ég hingað? Svo fór ég upp í herbergi og steindrapst. Ég vaknaði síðan extra snemma til [...]

Gott veður

Sól, sól skín á mig!
Ég hlakka til þegar það kemur sumar.

Skrifa undir hér

Hér er undirskriftasöfnun sem styður mannréttindi samkynhneigðra. Ég hvet alla sem hingað koma að ekki bara skrifa undir heldur einnig að setja linkinn á eigin síður. Það er alveg hrikalega hallærislegt að samkynhneigðir njóti ekki sömu réttinda og aðrir.
Skrifið undir hér!

Upprisa Þrumunnar

Ég á vinkonu sem ég kalla Svörtu Þrumuna. Hún er af Toyotu-gerð og er svört og rauð. Ég hef sterkan grun um að óbermin í götunni hans Einars hafi slitið Ö 2300 númerin af henni í hefndarskyni við mig og alla þá sem leggja fyrir utan húsið þeirra. Ég ætti kannski að taka upp á [...]

Hús

Ég er að hugsa um að kaupa mér hús. Þá þarf ég aldrei að flytja aftur.

Til hamingju með kærastann

Í gær sagði einn strákur við mig: Ég sé að þú ert komin með kærasta, til hamingju. Á móti spurði ég: Afhverju ertu að óska mér til hamingju með það? Þú myndir aldrei óska mér til hamingju ef ég væri orðin einhleyp.
Málið er að það þykir jákvætt í okkar samfélagi að stunda pörun og [...]

Mjá

Ég verð þunglynd af þessum handbolta.

Svalt

Hvenær hættir fólk að vera klúless? Núna er ég þrítug og þegar ég hugsa um sjálfa mig 22 ára þá fæ ég hroll. Þegar ég hugsa um sjálfa mig 18 ára langar mig í lóbótómíu. Verð ég æðislega sniðug þrjátíu og átta ára kona og sannfærist um að ég hafi barn verið þegar ég bjó [...]