Feed on
Posts
Comments

Archive for December, 2005

Foráramót í kvöld

Minn vinnur á morgun. Minn djammar því í kvöld.
Eða hvað?
Hvað er að gerast?
Er gaman að vera fullur á föstudögum?

Krísa á krísu ofan

Núna vill Kamilla endilega vinna á Sirk á gamlárs. Á ég að sleppa því? Á ég að vinna? Fullt af peningum. En líka gaman að vera laus.
Ég veit ekki, ég veit ekki, ég veit ekki.

Á meðal fólks

Í dag er fyrsti dagurinn sem ég er utanhúss í þrjá daga. Samt kúgast ég af horhósta og finnst ég ekki vera almennilega vöknuð. Þar sem ég er að fara að vinna á gamlárskvöld, vantar mig eitthvað skemmtilegt að gera annaðkvöld.
Skóli eftir helgi. Úff. Og hvar er eiginlega gíróseðillinn minn?

Jólajól

Gleðileg jól, elskurnar mínar.

Hahahaha!

Sá þetta hjá Katrínu.is

Þorláksmessa

Ég veit að ég er að nöldra yfir þessu í hundraðasta skipti, en…
Þetta sambýli er búið að rústa jólunum mínum of oft!
Ég er gamlingi sem hefur eytt jólunum sínum með einhverfum oftar en flestum er hollt.
Hvenær fæ ég að vera undanþegin versta ógeðinu sökum starfsaldurs?
Væl búið.

22. des.

Þetta eru mín jól. Í dag er dagurinn sem er stystur þeirra allra. Á morgun hækkar sól og ég get byrjað að hlakka til vorsins. Það er bara þetta vesen með janúar og febrúar. Mér leiðist kuldi og snjór. Mér leiðist að vera með hugarfar sem lætur mér leiðast kulda og snjó.
Í dag er [...]

Hjálp

Mig vantar frí til þess að kaupa jólapakka, laga til, setja í vél, hengja upp skraut og lemja Baldvin.

Fræðsla

Það er nú gaman að segja frá því að þegar ég var á sautánda ári fór ég í augýsingasálfræði (sál 113) í FG. Það lærði ég þau merku vísindi að sjálfur Jólasveinninn hefði fengið fötin sín frá Kókakóla vörumerkinu. Með það í huga þótti mér afar gaman að lesa þessa grein á Múrnum.
Mér [...]

Ammæli

Einar, unnusti minn, er tuttugu og sex ára í dag. Húllumhæ!

Þetta er gaman!

Buxur

Ég hef fest kaup á tvennum nýjum íþróttabuxum. Hafiði það. Ég er að hugsa um að setja nauðgarateipsbuxurnar á uppboð á ebay. Ég hef nú lent í ýmsu í þeim. Ég ætti kannski að skrifa sögu þeirra.

Okkur Fjólu lillesös eigum það til að vera afar hrokafullar konur og er tíðrætt um illa upplýsta fólkið. Við skiljum ekkert af hverju sumir t.d. halda að þeir verði að skíra börnin sín til þess að þau heiti eitthvað, eða af hverju fólk heldur að jól séu kristin hátíð. Jólablót voru haldin hér á löngu [...]

DVD

Ég er að breytast í DVD frík. Síðastliðna þrjá daga hef ég keypt mér The Nightmare Before Christmas, Edward Scissorhands, Goodfellas og Pride & Predjudice (BBC seríuna m. Colin Firth).
Oh, Mr. Darcy!

Gaman

Nú hef ég skrifað um Írafár. Ekki bara kann ég plötuna þeirra nánast utanað, heldur er ég líka með hana á heilanum.

Þessu myndi ég ekki nenna

Move over Joshua, John David, Janna, Jill, Jessa, Jinger, Joseph, Josiah, Joy-Anna, Jeremiah, Jedidiah, Jason, James, Justin, and Jackson Levi; you’ve got a new baby sister, Johannah. These 14 children are not products of incest as I initially assumed but in fact are the sons and daughters of former Arkansas state representative Jim Bob Duggar [...]

Tuttugu og fimm ár og einn dagur

Jibbí jeij!

Ég er komin með nýja vinnu. Mig er búið að langa í hana í 3 ár.
Getiði nú.

Já, ég á bíl

Settu nafnið þitt í kommentakerfið og..
1. Ég segi þér eitthvað handahófskennt um þig.
2. Ég segi þér hvaða lag/mynd minnir mig á þig.
3. Ég segi þér hvaða bragð minnir mig á þig.
4. Ég segi þér fyrstu ljósu minninguna mína af þér.
5. Ég segi þér á hvaða dýr þú minnir mig á.
6. Ég spyr þig að einhverju [...]

[image:band72.jpg]
Myndina fá finna stærri hér.