Feed on
Posts
Comments

Archive for September, 2005

Maður lifandi hvað ég er heppin!

Ég var einmitt að hlusta á lag af nýju Madonnu plötunni – hún er að sampla ABBA! Vá hvað ég hlakka til þegar hún kemur út. Á ammælinu mínu!

Ammælissystir 24 ára

Hún á ammælí dag,
hún á ammælí dag.
Hún á ammælún Pangý,
hún á ammælí dag.

[image:madonnacon.jpg]

- – -

I was not your woman, I was not your friend,
But you gave me something to remember.
No other man said love yourself
Nobody else can.
We weren’t meant to be,
At least not in this lifetime,
But you gave me something to remember.
I hear you still say, “Love yourself”.

-=-=-=-

Allt í einu fattaði ég að ég er í skóla…
Sögukennari: Finnst þér leiðinlegt í skólanum? Ertu viss um að þú nennir þessu?
Helga: Mér finnst gaman í skólanum ég mæti bara skringilega af því að ég er í fjórum vinnum.
Sögukennari: Já ég skil. Í hvaða fleiri fögum ertu?
Helga: (telur upp fög)
Sögukennari: Nú bara á síðustu metrunum. [...]

Ég þrái þennan bíl

[image:pacerblue.jpg]

Það er óþolandi þegar MySpace liggur niðri

Þreytta tölvan

Það tók hana aðeins 10 mínútur að starta sér upp núna. Meiriháttar. Reyndar var mér alveg sama því ég var orðin skíthrædd um velferð hennar og eigin útgjöld þegar hún vildi ekki hlaða sig í sögu áðan.
Ég náði mér í þúsundkall í gær til þess að hafa með mér í skólann + vinnunna. Hann [...]

Klukk this!

Ég er rauðhærð.
Ég elska sushi.
Ég fæ brjóstsviða af miklum lauk.
Ég er ennþá með eina barnatönn.
Mér finnst Einar alveg ferlega sætur.
Ég klukka Kamillu.

Bingó

Eva Kamilla var deitið mitt á bingó hér á rúv í gær, það er nú eins og það er, Kamilla fékk vinning en ég engan. Reyndar var ég svo heppin að einn vinnufélagi minn gaf mér hluta af sínum vinningi. Forláta púsluspil með fallegri mynd.
Svo fékk ég líka óvæntan aukavinning*. Nokkuð sem mig hafði [...]

Dæmigert

Loksins þegar ég er búin að fá fyrsta heila helgarfríið mitt á barnum í marga marga mánuði, þá verð ég að vinna á rúv. Ég er brjáluð!

Það gengur á ýmsu í hitavatnslausu húsi

Sem dæmi má nefna að ég fór í sund í dag. Reyndar var það ágætt, því þegar þangað kom bannaði sundlaugarvörðurinn mér að borga þar sem ég var í ÍTR peysu. Ég var alveg búin að gleyma að ég fæ frítt í sund, jibbí!
Og þá kom fólk á Kaffibarinn og ég er hætt að blogga.

Tilsammans

Ég er flutt í fallega húsið með garðinum, borðstofunni, tjörninni og hengirúminu. Bráðum býð ég fólki í mat og sendi það á gestaklósettið.

Nýjasta nýtt

Ég hef uppgötvað stórkostlegt forrit til þess að stela tíma frá námi, flutningum og öðru sem skiptir máli. Það er reyndar smástund síðan ég sá þetta fyrst en ég gleymi alltaf að segja frá því.
Hér kemur besti tímaþjófnaður síðan online leikir hófu göngu sína: http://earth.google.com
Góða skemmtun!

Kalla alla prinsa!!!

Neglur nagaðar

Ég kvíði alltaf fyrir að mæta í íslensku og ensku. Ég á nebblega ekki bækurnar og kennararnir líta á það sem persónulega móðgun við þá að maður eigi ekki peninga fyrir þeim. Ég ætti frekar að móðgast yfir því að þau breyta um kennsluefni þannig að ég get lítið fengið lánaðar bækur hjá vinum mínum. [...]

Skyndilega

…er ég hætt að vera skotin í A. Það hvarf bara. Það er ágætt. Núna er ég skotin í engum. Alls engum.
Ég er hinsvegar að fara að flytja í glæsilegt hús sem stendur við sömu götu og núverandi hús. Það er á þremur hæðum og ég hlakka ægilega mikið til þegar iðnaðarmennirnir eru búnir [...]

Enginn veit hver annars konu hlýtur

Það er nafn á bók sem mér þykir stórkostleg, öllu heldur er það höfundurinn, Snjólaug Bragadóttir frá Skáldalæk, sem á hug minn allan. En hvað um það. Í dag er eitt ár liðið. Heilt ár síðan að ég lánaði sturtuna mína. Þetta er allt að koma.

Í kvöld

…ætlar uppáhalds hljómsveitin mín Conrad Electro að halda tónleika á Pravda. Ég hlakka svo til. Þeir eru besta hljómsveit í heimi og fyrir þá sem ekki vita er hægt að skreppa á heimasíðuna þeirra, hala niður músík og tékka á þessu. Tónleikar byrja klukkan 21:00 og inn kostar kr. 500.

Margt og mikið

Elsku fagri tvíliti kagginn minn tók upp á því að bila í gær. Í morgun renndi ég honum í gang en hann vildi ekki hlaðast. Einum nýjum rafgeymi og snúru milli alternators og rafgeymis síðar malar hann eins og kisinn sem hann er.
Í kvöld opnar Sirkus aftur eftir brunann litla. Kannski verða systurnar búnar [...]

Next »