Hvað er uppi heimalningur?
August 22nd, 2005 by Helga Þórey
Í kvöld ætla mínir kæru vinir í uppáhaldshljómsveitinni minni Conrad Electro að halda tónleika á Ólíver. Sammi (skótau) Jagúar ætlar að spila með þeim. Þeir sem vita ekki hverjir Conrad Electro eru ættu að tékka á linknum hér til hægri eða bara láta sjá sig í kvöld. Gamangaman.
Í öðrum fréttum: Baldvin, kollegi minn á Kaffibarnum hefur fundið hús og þar ætlum við Fjördís að búa með honum. Húsið er á Grettisgötu svo ekki þarf ég að fara langt og svo er það líka á þremur hæðum. Á morgun byrja ég í skólanum og það verður gaman. Stundataflan mín lítur út eins og eðlileg stundatafla og ég verð alltaf búin snemma á mánudögum og föstudögum. Kannski fer ég að vinna aftur í V-hlíð þessa daga. Hver veit? Enda þykir mér ótrúlega gaman að leika við þessar elskur. Fatlað fólk er svalt fólk.
3 Responses to “Hvað er uppi heimalningur?”

Til hamingju med husid!
TIL LUKKU
ertu til i ad gefa mer nytt username og password thvi ad thad eru isloenskir stafir i badu sem eg hef ekki adgang ad lengur:}