Feed on
Posts
Comments

Sumir dagar eru rugl dagar. Ég reif mig á lappir í morgun þrátt fyrir ágætis vöku og stefndi beint á útidyrahurðina og þaðan í bílinn og svo í skólann þar sem stundataflan beið og bíður enn.
Nei.
Helga finnur ekki lyklana sína.
Helga trashar íbúð í leit að lyklum.
Helga finnur ekki lyklana sína.
Helga leitar í þrjá klukkutíma.
Helga vill ekki yfirgefa íbúð ólæsta v/ ágangs róna.
Helga hringir í alla sem mögulega geta verið með lykla(na).
Fjóla lillesös bjargar deginum, passar íbúð, Helga fer til Brynju, Helga kaupir eitt stykki langan sýlinder og skiptir um – Hókuspókus > Þrír nýjir lyklar af íbúð.

Sá sem er með lyklana mína (finn þá örugglega um leið og ég kem heim), skuldar mér 2000 krónur.

Comments are closed.