Feed on
Posts
Comments

Archive for August, 2005

Prinsaprins á heimasíðu

Ég hef ekkert að segja nema að hér er linkur á hann Hjört, son hennar Mörtu.
Jú, reyndar eitt. Tónleikar með Petter, Micke, Eric Kvick og Samma Jagúar á Ólíver klukkan 21:00. Ég myndi drífa mig til að ná sæti.

Nýtt líf

Á föstudagskvöldið klukkan 21:20 fæddist lítill strákur á sjúkrahúsinu á Akranesi.
Til hamingju elsku Marta mín.

Loksins, loksins, loksins

Hjördís er farin upp á Skaga.

Mennt er máttur

*Skólagjöld: 10.000.-
*Skólabækur: Íslenska: 9.500.-, stærðfræði: 3.500.-, enska: 2.500.-, saga: 3.500.-, sálfræði 4.500.-
*Fínn vasareiknir: 3.500.-
*Netkort: 5.000.-
- Að ógleymdum ógrynnum af pennum, stílabókum og kjörbókum.
Skilaður peningunum mínum skattur! Ég er hvortsemer bara að fara að endurvinna þá til þín aftur! Jafn réttur til náms up my ass!

Jæja

Núna er ég búin að prenta út og raða upp dagskrá beggja rása fyrir árið 2004. Fyrir framan hverja einustu viku er þartilgert blað með dagsetningu og vikunúmeri. Sem ég breytti sjálf. Handvirkt.
Óli Palli hafði rétt fyrir sér og ég tek ofan fyrir dagskrárritstjóra útvarpsins. Þetta er leiðinlegasta vinnan í öllu húsinu.

Komiði

Í kvöld klukkan 22:00 ætlar minn kæri Petter Winnberg að spila frumsamin lög á Sirkus.

Hvað er uppi heimalningur?

Í kvöld ætla mínir kæru vinir í uppáhaldshljómsveitinni minni Conrad Electro að halda tónleika á Ólíver. Sammi (skótau) Jagúar ætlar að spila með þeim. Þeir sem vita ekki hverjir Conrad Electro eru ættu að tékka á linknum hér til hægri eða bara láta sjá sig í kvöld. Gamangaman.
Í öðrum fréttum: Baldvin, kollegi minn á Kaffibarnum [...]

Vondivondivondi skattur

Til ráðstöfunar: -547,00 kr.
Í alvöru talað – ég vil fá peningana mína til baka.

To all the men I ever loved

Ég er búin að týna dóti, eyða peningum í óþarfa og er á bullandi túr.
Sá sem fokkar í mér í dag verður laminn.

Þvílíkt og annað eins

Sumir dagar eru rugl dagar. Ég reif mig á lappir í morgun þrátt fyrir ágætis vöku og stefndi beint á útidyrahurðina og þaðan í bílinn og svo í skólann þar sem stundataflan beið og bíður enn.
Nei.
Helga finnur ekki lyklana sína.
Helga trashar íbúð í leit að lyklum.
Helga finnur ekki lyklana sína.
Helga leitar í þrjá klukkutíma.
Helga vill [...]

Kamilla = Bragi

Sjáiði hvað hún Kamilla er falleg!!!

Vond lykt

Á einhverjum bás inni á deildinni minni er kona sem notar ilmvatn. Þetta teldist nú ekki til vandræða ef hún notaði ekki jafn mikið á einum degi og franskt hóruhús á 19. öld notaði á heilum mánuði. Til að bæta gráu ofan á svart er ég með svo mikið ofnæmi fyrir þessu ilmvatni að mig [...]

— Z —

Well, I was born
To have adventure
So I just followed up the steps
Right past her fuming incense stencher
To where she hung her castanets

Mig vantar íbúð

…og hún má ekki kosta milljónþúsund á mánuði.

And*%&#ans!

Ég þoli ekki að skatturinn skuli halda peningunum mínum í gíslingu. Ég vil fá þá núna. Ég nenni ekki að bíða í marga mánuði – I’ve got bills to pay.

Ég get ekki hætt að hlusta á nýju Gorillaz plötuna – djöfull er hún góð!

Ný Helga

Nú er ég orðin stoltur bifreiðareigandi í fjórða sinn á ævinni. Reyndar þurfti mamma að leggja út fyrir honum vegna skattsvika fyrrum vinnuveitanda míns – en svona er það þó. Ö 2300 er ennþá í fjölskyldunni.
Hvað á ég að láta hann heita? Slutmobile er það eina sem mér dettur í hug.

Mp3

Er þetta löglegt?

Af hverju eru karlmenn með geirvörtur?

Góðar fréttir

Um svipað leyti og storkurinn eykur íbúafjöldann á Eggertsgötunni kemur hingað til lands mín ástkæra, geðveika vinkona, Ragnheiður.
Ég hlakka til.

Next »